Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1950, Side 47

Kirkjuritið - 01.01.1950, Side 47
Bjartsýni kristindómsins. i. Þegar frumkristnin vildi lýsa eðli kristindómsins í sem skemmstu máli, valdi hún eitt orð um hann: Fagnaðar- erindi. Hugtakið var þegar til áður í hebresku máli, sögnin ..basar“, sem þýðir: að flytja góð tíðindi. Þessi góðu tíðindi, þetta góðspjall eða guðspjall var boðskapur Jesú um komu Guðs ríkis. Hann var þrunginn gleði og bjartsýni. Enginn minnsti vafi er á því, að þessi skilningur frum- kristninnar var réttur. Það þarf ekki annað en að lesa orð Jesú í guðspjöllunum til þess að sannfærast um það. Þau streyma fram eins og lífið sjálft, og í þeim straumi má líta sólbjartan himininn. Jesús segir það einnig um þessi aldahvörf í sögu veraldar, að þau séu gleðitími. ..Verið glaðir og fagnið," segir hann. Já, sælir eru fá- tækir, syrgjendur, hungraðir, þyrstir, ofsóttir. Þeirra er himnaríki. Hann líkir samvistunum við lærisveina sína við brúðkaupsveizlu og spyr: Hvort geta brúðkaupssveinarnir fastað, meðan brúðguminn er hjá þeim? Og jafnvel á skilnaðarstundinni kveðst hann munu síðar drekka með þeim af ávexti vínviðarins í guðsríki. öll þessi mikla gleði og birta stafar af því, hve Guð er góður, faðirinn á himn- um, sem lætur sól sína renna upp yfir vonda og góða og rigna yfir réttláta og rangláta — elskar hvoratveggju óþrotlegum og eilífum kærleika. Og jafnvel þótt börnin hans villist frá honum að drafi svínanna, þá er kærleiki hans engu að síður hinn sami. Þrátt fyrir þennan skýra og himintæra boðskap á þvi máli, sem móðirin talar við barnið sitt, hafa kristnar kynslóðir stundum horfið frá honum, misst þor og bjart- sýni og lífsfögnuð frumkristninnar og kristindómurinn

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.