Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1950, Side 53

Kirkjuritið - 01.01.1950, Side 53
BJARTSÝNI KRISTINDÓMSINS 51 (Sbr. Mark. 4, 12). Sagði hann dæmisöguna um glataða soninn og miskunnsama Samverjann til þess að dylja fyrir áheyrendum sínum kærleiksboðskapinn, sem þær hafa að geyma? Hver hugsandi maður hlýtur að sjá, að slíkt fær ekki staðizt. Dæmisögur Jesú og líkingar eru engar ráðgátur, eins og Gyðingar hugðu dæmisögur vera. Þær andmæla sjálfar augsýnilega þeim skilningi. Þegar útskúfunarkenningin er borin saman við kjarnann í gleðiboðskap Krists, kemur gleggst í ljós, hver fjarstæða hún er. Guð er faðir mannanna. Það er þungamiðja alls, er Jesús kennir. Og í því að Guð er faðir felst ekki aðeins það, að hann hefir gefið mönnunum lífið og annast þá á allan hátt, og þeir eru hans ættar, heldur það bæði síð- ast og fyrst, að hann elskar þá, því að Guð er kærleikur. Til þess að leiða í ljós villu kenningarinnar um útskúfun mannkynsins þarf því ekki annað en spyrja líkt og Jesús: Ef nú þér, sem vondir eruð, viljið eigi börnum yðar mein, myndi þá faðirinn af himni hafa búið börnum sínum örlög glötunarinnar um alla eilífð? Og vilji menn verja kenn- inguna með því, að mennirnir sjálfir hafi búið sér þessi örlög með misbeitingu viljafrjálsræðisins, þá er því að svara, að allt þetta hafi alvitur Guð hlotið að sjá fyrir, °g hvernig megi það þá vera, að almætti hans láti verða til slíkar verur vansælar um alla eilífð. Fagnaðarerindið mesta, sem Kristur flutti: Guð er kærleikur vísar kenning- unni ljótu á bug. Og jafnvel þótt menn geti ekki fallizt á það, að nokkur orð frumkristninnar hafi verið lögð í Kristi í munn, þá verður að meta kenning hans eftir anda hennar og meginefni fremur en bókstaf. Fagnaðarboðskapur Krists um föðurkærleika Guðs megnar þannig að leysa mannkynið við helvítisóttann, ef það veitir boðskapnum viðtöku. Því að ótti er ekki í elskunni, heldur útrekur fullkomin elska óttann. En ábyrgð lífsins helzt engu að síður, því að sárast af öllu er að brjóta í móti vilja kærleikans sjálfs.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.