Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1950, Qupperneq 61

Kirkjuritið - 01.01.1950, Qupperneq 61
HEIMSÓKN TIL HEIMATRÚBOÐSINS 59 þegar skírt væri, „því skírnin er oss gefin til að frelsa sálina en ekki til að eyðileggja líkamann.“ — Síðar hefir hver kirkja fengið stórt silfurfat, sem sett er yfir skírnarfontinn, svo skímarlaugin er ekki eins stór. Mörg af þessum skírnarfötum eru skreytt með rússneska keisaraeminum og talin vera gamalt herfang. Aðalumræðuefni fundarins var um kristniboð. Eftir að stað- arpresturinn hafði innleitt umræðurnar með langri og ýtarlegri ræðu, var orðið gefið frjálst. — Við heima myndum kannske fremur hafa kallað umræðurnar, sem á eftir fóru, samræður. Menn ræddust við um málið, ekki með þeim hátíðleik, að hver og einn ræðumannanna risi á fætur til að styðja sínar skoð- anir, heldur frá sætum sínum. Þetta gerði það að verkum. að fyrr en varði höfðu allir blandað sér í málið, en meiri- hlutinn sat ekki hjá og hlustaði sem þegjandi múmíur. Ætlun formælanda hafði upphaflega verið, að umræðurnar skyldu snúast um kristniboð meðal heiðingja. En það varð fljótlega ljóst, að flestum fundarmanna fannst trúboð innan safnað- anna sjálfra fullt eins knýjandi viðfangsefni. Ekki samt svo að skilja, að heiðingjatrúboð ætti ekki hljómgrunn meðal þeirra. Gömul slagorð frá fyrstu árum danska trúboðsins komu þeim í hug, vængjuð eins og þessi: Danmörk á til ná- kvæmlega þá trú, sem hún flytur út, sem útleggst: Við eig- um aðeins þá trú, sem við sýnum í verkinu. — En í dag getur kirkjan ekki lokað augunum fyrir þeirri staðreynd, að hún á í baráttu á heimavígstöðvunum meir en nokkru sinni fyrr: Safnaðarvitundin er ekki lengur hin sama og áður. Áhrifa kirkjunnar gætir ekki sem skyldi í þjóðlífinu og í lífi ein- staklinganna. Löggjafinn tekur ekki tillit til hugsjóna kirkj- unnar og lífsskilnings sem fyrr. — Hvað á að gera? — Það var bent á margar leiðir til að endurvekja áhuga almennings fyrir boðskapnum og skipuleggja safnaðarstarfið. Og að því öllu var gerður góður rómur, en eitt var þó nauðsynlegast alls, kom mönnum saman um: Samvinna, samstarf og eining allra kristinna manna til sameiginlegra átaka, enda þótt þeir fylltu ólíka flokka og um sumt hefðu sínar frábrugðnu skoðanir. Og það var harmað, hvemig nýjum stefnum innan kirkjunnar hefði stundum verið tekið, t. d. Oxfordhreyfingunni. — Kirkj- an verður líka að gera sér það ljóst, að Guð talar til manns-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.