Kirkjuritið - 01.04.1954, Blaðsíða 48
190
KIRKJURITIÐ
Ætlazt er til þess, að þennan dag verði fluttar messur í
svo mörgum kirkjum sem framast er unnt. Þar sem prestur
kemur því ekki við sjálfur, er æskilegt, að hann fái leikmann
til þess að flytja hugleiðingu við guðsþjónustu í kirkjunni og
bænir og ávörp úr kórdyrum.
Ný Skállioltsnefnd.
Kirkjumálaráðherra hefir nýlega skipað þrjá menn í nefnd,
Hilmar Stefánsson bankastjóra og þá prófastana, séra Hálfdan
Helgason og séra Sveinbjörn Högnason, til þess að gjöra til-
lögur um endurreisn Skálholts og framtíðarskipulag staðarins,
sérstaklega með tilliti til afmælis biskupsseturs í Skálholti
1956, og ber nefndinni að hafa í því efni samráð við biskup
Islands og leggja síðan tillögur þær, sem biskup og nefndin
hafa komið sér saman um, fyrir kirkjumálaráðuneytið til sam-
þykktar. Skal nefndin hafa lokið þeim störfum fyrir 1. október
næstkomandi, svo að hægt sé að taka upp á fjárlög næsta árs
þann kostnað, sem tillögur nefndarinnar kunna að hafa í för
með sér. En ætlazt er til, að nefndin standi fyrir framkvæmd-
um, þegar þar að kemur. Formaður nefndarinnar er Hilmar
Stefánsson.
Sumarskóli að Löngumýri.
f sumar mun ungum stúlkum væntanlega gefast kostur á
að verja sumarleyfi sínu á fjölbreyttari hátt en hingað til
hefir verið mögulegt.
Ríki og kirkja hafa tekið höndum saman um að gera mögu-
lega hugmynd Ingibjargar Jóhannsdóttur, skólastjóra hús-
mæðraskólans á Löngumýri í Skagafirði, um nokkurs konar
sumarskóla, þar sem hvíld og hressing samhliða nokkurri
fræðslu fylgdist að.
Ætlunin er, að þessi sumarskóli hefjist 26. júní og starfi
í tvo mánuði, sem skiptast í hálfs mánaðar tímabil.
Öllum stvilkum, 15 ára og eldri, er heimil þátttaka allan
tímann, en skemmsti dvalartími er tíu dagar.
Á staðnum er útisundlaug, og farið verður í ferðalög til
hinna mörgu sögustaða í nágrenninu og í aðrar skemmtiferðir.
Fastir kennarar verða m. a.: Ingibjörg Jóhannsdóttir, skóla-
stjóri, Ólafur Skúlason, stud. theol., og Gerður Jóhannsdóttir,
kennari. Ennfremur verða fengnir fyrirlesarar að skólanum,