Kirkjuritið - 01.10.1961, Side 3

Kirkjuritið - 01.10.1961, Side 3
Þjónustan við þá, sem líða FrELSARINN gekk ekki framlijá sjúkum og þjáSum. Raun- «'ir má segja, að allt hans starf á jörðu liafi verið að bæta mann- leg mein til líkams og sálar. Hitt er athyglisvert í frásögum guðspjallanna, hve mikið af starfstíma hans er helgað lækn- Uigum og hjálp við sjúka menn, — og hve veglegan sess þær frásagnir skipa í guðspjöllunum. Betur er ekki hægt að sýna, að h'kamlegt og andlegt böl eru tveir meginþættir þeirrar hyrðar, er á syndugu mannkvni hvílir, og úr báðum þarf að haeta. Hvorugt má vanrækja, hvorugt ofmeta á kostnað liins. Svo skyldi starf fagnaðarerindisins framkvæmt á jörðu, að það hjálpi manninum öllum, bæði líkama og sál. Lærisveinar Jesú meðtóku boð hans og reyndu að feta í fót- spor lians. Prédikun og fræðsla hélzt í liendur við líknarstarf, hjúkrun og lijálp í bágindum lífsins. Svo var í uppliafi og er enn, að í kristniboðinu er lögð rík áherzla á lækninga- og h'knarstarfið jafnframt prédikuninni og margháttaðri fræðslu. Hvort tveggja er boðun trúar, og það er síður en svo undr- nnarefni, að líknarstarfið opnar oft fagnaðarboðskapnum dyr að mannlegum lijörtum. Auðvitað er þetta svo, því að þar er fagnaðarerindi kærleikans í verki. En svo er að sjá sem lieimakirkjur kristinna landa hafi stundum gleymt eða afrækt þessa virku lilið kristindómsins. í*ó eru við og við unnin stórvirki á ýmsum stöðum. Víða um hristin lönd er mjög mikið gert af liálfu safnaða, kristilegra lélagshópa og einstaklinga sjúkum og bágstöddum til bjargar, uressingar og lieilla á ýmsan hátt. Þess ber og að geta, að síð- ustu áratugi eykst það liröðum skrefum, að margt starfið, sem hristinn söfnuður lióf — og oft við lítinn skilning annarra, —- hefur hlotið fastan sess í þjóðfélaginu, þykir sjálfsagt og °ntissandi og verður stundum sjálfstætt risafyrirtæki fellt að 22

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.