Kirkjuritið - 01.10.1961, Qupperneq 36
Nú í nafni Jesú til náðar um sinn
legg ég þig í vögguna vesalingur minn.
Legg ég þig í vögguna, værð gefi þér
huggarinn hæstur, sem himneskur er.
Huggarinn hæstur hjálpræði þér vann,
lofaður sé Drottinn, sem lét þig fæðast mann.
Lofaður sé Drottinn, sem leið fyrir þig pín,
friðinn þér veitti í faðminum sín,
Friðinn þér veitti hans forþénustan klár,
heilagan anda og himneska náð.
Heilagan anda, sem þig hreinsa vel kann,
mitt í skírninni meðtókstu hann.
Mitt í skírninni hans minningin rís
þvi skaltu honum þóknast og þjóna með prís,
Því skaltu honum þóknast, þá þú skilning fær
hlýða hans boðorðum og hafa þau kær.
Hlýðnin er upphaf til heillanna títt,
því skaltu varast þrályndið strítt.
Því skaltu varast þrályndi og móð,
blót og bakmælgi barnkindin góð,
Blót og bakmælgi bönnuð er þér,
hlýddu þínum foreldrum i hverju sem ber.
Hlýddu þínum foreldrum og heiðraðu þá,