Kirkjuritið - 01.09.1976, Page 36

Kirkjuritið - 01.09.1976, Page 36
fá tækifæri til að bera vitni um trú sína, og um fram allt fá að þjóna öðrum, það gilti einu þótt hann fengi hið lítil- mótlegasta hlutverk og yrði hæddur og vanmetinn. Þess vegna gekk hann í klaustrið. Dvalarstaður hans í klaustrinu var í mesta máta ömurlegur. Við urðum þess vísari daginn eftir, er við heim- sóttum hann. Við urðum að klifra yfir hálfhrundar tröppur hér og þar, og snúast í ýmsar áttir í þröngum rang- ölum. Ég sagði við Lewar, sem var fylgdarmaður okkar: „Eg get bezt trú- að, að við séum á réttri leið, það er einmitt þannig umhorfs hér, að hér gæti Awkum verið á gangi daglega. „Er við síðan sögðum eitthvað við hann um þennan dvalarstað hans, sem var aðeins örlítil kytra, með háum glugga, litlum, nöktum veggjum, rúm- fleti, og smáborði við höfðalag, svaraði hann: „Þar sem Kristur er með mér, þar er gleði, hvernig sem húsumerháttað." í klaustrinu var starf hans að búa til altarisbrauð og messuvín, og reynd- ar fleiri víntegundir, sem voru bornar fyrir gesti, sem að garði bar. Við vor- um furðu lostnir að sjá þennan mann stunda slíka iðju, en brátt rann þessi starfsemi inn í heildarmyndina af þessum undramanni. Jafnvel enn í dag stendur hann mér fyrir hugskots- sjónum þar, sem hann stundaði starf sitt með augsýnilegri elju og alúð. Handtökin voru viss og ákveðin, og hlutirnir runnu frá honum eins og á færibandi í verksmiðju. En á vissum tímum lagði hann allt frá sér og kom glaður og kankvís á móti þeim, sem leituðu á fund hans. Menn koma til hans úr öllum átt- um, af öllum stéttum og þjóðernum- Hann er álitinn einskonar heilsulynd. Menn segja, að í návist hans birtist allt, sem miður fer í bjartara Ijósi en ella. Hann hefir eitthvað að bjóða, sem sorgbitnir og hrjáðir þrá, — ef til vill einna helzt hlutdeild í gleði hans og góðvild. Margir koma á fund hans af ein- skærri forvitni. Nikodemus, yfirstéttar- maðurinn, kemur þar, en hann vill helzt láta sem minnst á því bera, að hann sé að tala við þennan sérvitring- Faríseinn kemur með allan sinn lær' dóm, og vill fá að vita, hvort hér sé nokkuð nýtt á ferð. Tómas kemur ark- andi með allar efasemdir sínar og yfir" læti. Þar kemur og hinn ríki, ungi maður, viss í sinni sök, að hann hafi eignast það, sem alls er vert, og er fyrirfram ákveðinn í því að breyta engu um hátterni sitt. Þangað korrta hálfsofandi lærisveinar, sem eru í þann veginn að sofna út frá kristindómi sínum fyrir fullt og allt. Margir verða snortnir, aðrir hverfa frá, yppta öxlum og hugsa, og segja stundum: „<3etur nokkuð gott komið frá gráskeggi3 þessum?“ En Awakum veit, hvað með manninum býr. Hann sér engen mannamun, hann brosir við þeim °9 blessar þá alla. Við snerum við, í daufri dagskímu innan klausturveggjanna hvíslaði LeW- ar að mér: „Ég þekki engan lærðan mann, sem Awakum getur ekki sett á kné sér. Þessi allslausi maður er ríkari en vitringar og valdarnen11 heimsins. Hann er uppljómaður. • • Valdimar J. Eylands þýddi úr þýzku. 194

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.