Kirkjuritið - 01.09.1976, Blaðsíða 80
Gjöf evkaristíunnar á annars vegar
rót sína að rekja til leyndardóms
dauða Krists og upprisu á páskum,
þar sem hjálprœðistilgangur Guðs er
settur fram á ákveðinn og raunveru-
legan hátt. Á hinn bóginn er tilgang-
ur þessarar gjafar evkaristíunnar að
veita lífi hins krossfesta og upprisna
Krists til kirkjunnar, sem er líkami
hans, svo að limir hennar verði nánar
samtengdir Kristi og nánar tengdir
innbyrðis.
★ ★ ★
7
Kristur er nálœgur og starfandi á
margvíslega vegu í allri athöfn ev-
karistíunnar. Það er hinn sami Drott-
inn, sem fyrir orð sitt — þegar það er
boðað — býður lýð sínum til borðs
með sér, og hann veitir þar sjálfur
forstöðu um farveg þjóna sinna og
gefur sig, líkama og blóð í sakrament-
inu sem páskafórn. Það er sá Drottin,
sem er til hœgri handar föðurnum,
sem veitir kirkju sinni hina sérstöku
gjöf, sem hann sjálfur er í efnum
(signs) evkaristíunnar.
8
Líkami og blóð frelsarans í sakra-
mentinu (The sacramental body and
blood of the Savior) eru til staðar í
sakramentinu sem fórnargjöf (offering)
til hinna trúuðu, sem vœnta þess; að
hann veiti þeim viðtöku. Þegar þessi
fórnargjöf er þegin í trú, þá verða þar
lífgefandi samfundir. Fyrir trúna verð-
ur nálœgð (presence) Krists ekki að-
eins nálcegð fyrir hinum trúaða, held-
ur einnig nálœgð með honum. Hin
raunverulega nálcegð Krists er ekki
reist á trú einstaklingsins, svo að hún
verði þannig raunveruleg sjálfsgjöf
handa kirkju hans. Er vér athugum
leyndardóm nálcegðar Krists í sakra-
mentinu, þá verðum vér að viðurkenna
bœði tákn (sign) nálœgðar Krists '
sakramentinu og hið persónulega
samfélag Krists og hins trúaða, sem á
rót sína í þessari nálœgð.
9
Orð Drottins við síðustu kvöldmáltíð-
ina: „Takið og etið, þetta er líkami
minn" leyfa ekki að sundur sé skilin
gjöf nálcegðar Krists og berging
sakramentisins. Efnin (elements) eru
ekki tákn (sign) eingöngu. Líkami
Krists og blóð verða raunveruleg^
nálœg og sannarlega veitt til þesS
að hinir trúuðu, er þeir bergja, sam-
einist í samfélagi við Krist, sem er
Drottinn.
10
Eftir venjulegum hcetti litúrgíunnar
kemur berging hinna trúuðu í fram-
haldi af helgunarbceninni (ana-
p h o ra).
Fyrir þessa þakkargjörðarbœn, orð,
sem faðirinn er ávarpaður með, verð-
ur brauðið og vínið líkami og bláð
Krists fyrir verkan heilags anda,
þannig að vér bergjum líkama Krists
og blóð.
238