Jörð - 01.07.1944, Síða 9

Jörð - 01.07.1944, Síða 9
orð texta vors að revna að hugfesta oss rækilega ániinn- inguna, sem þau hafa að flytja? Og nú inunu einhverjir yðar hugsa á ný: Nú, við eiguin þá að fara að hlusta á ákærur! Ræðumaðurinn ætlar að fara að hregða hér upp hinum blóðugu myndum Sturl- ungaaldarinnar. Hann hefur í hyggju að stefna óhappa- mönnum þeirrar aldar hingað lil dóms. Innan stundar sjá- um vér svipi þeirra Sturlu Sighvatssonar, Þorgilss Skarða og Gissurar Þorvaldssonar reika liér um völlinn. Yér fáum enn einu sinni að heyra söguna um alla sundrungina og um fláttskapinn — söguna um öll launráðin og um morð- hrennurnar. Og vér fáum enn að héyra söguna um þjóðar- frelsið, sem glataðist. Svipur hins vélráða konungs, Hákonar gamla, verður særður fram og i slóð lians heil hersing af glottandi hungurvofum margra alda. Nei. Ég ætla mér ekki að fara að ákæra hina framliðnu. Þeir hafa þegar fengið sinn dóm. Og ég ætla ekki að fara að láta sár Sturlungaaldarinnar blæða á ný. — En text- inn, sem ég hlaut, gefur til kynna, að mér beri við þetta tækifæri að minna yður á, hvað það var, sem olli óham- ingju þeirrar aldar — hvað það var, sem forðum olli því, að þjóðin glataði frelsi sínu — minna yður ó, að orsökin var sú, að þjóðin liafði glatað guði sínum. Ifún hafði glal- að þeim guði, sem hún gekk á hönd árið 1000 á hinum lielgasla stað landsins — glatað þeim guði, sem hafði þá um tveggja alda skeið hellt yfir hana blessun og friði og blómstrandi menning. Hún hafði að minnsta kosti misst sjónir á þeim höfuðlögmálum, sem hann — alfaðir lífsins -— hefur selt mannlífinu — þeim þróunarlögmálum, sem framsókn og farsæld sérhvers einslaklings og sérhverrar þjóðar er alveg ójúfanlega hundin. Hinir giftulausu leið- togar þessarar ógæfusömu aldar voru gersamlega hlindir fyrir þeirri heilögu sannreynd, að skefjalaus sjálfsþjónusta er ekki leiðin til hamingjunnar — hvorki hamingju ein- staklingsins né hamingju þjóðanna. Þegar miklir og giftu- ríkir einstaklingar hafa orðið til, hafa þeir orðið það - ekki í krafti sjálfsþjónustunnar, heldur i krafti sjálfs- JÖRÐ 151

x

Jörð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.