Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Síða 7
GULL- OG GIMSTELNAB/EIE AFRÍKU
101
Þokunni skellir saman aftur, og sultur-
Inn verður hávær.
Svo þrammar hann ofan Dalinn, veður
ár og læki beint af augum og kemur ofan
að Mýri rétt eftir mjaltir. Nonni litli er
að koma frá því að reka ærnar.
Þeir mætast á miðju hlaðinu. »Sæll«.
»Sæll«.
»Heyrru hrói’ mitt. É’ ætl’ a’ bija þi’
a’ skila til ’enna mömmu þinna’ a’ é’ bij’
um a’ gefa mér a’ drekka. Mér e’ so sem
sama hvott þa’ e’ harrur fiskur e’a baun-
ir«. —
o....>~ :.ras©4-es=r--:- -( t
Sophie Petersen:
Gull- og gimsteinabæir
Suður-Afríku.
Steindór Steindórsson frá Hlöðum þýddi.
Höfundur greinar þessarar, magister Sóphie
Þetersen er danskur jarðfræðingur. Hefur hún
ferðast víða um heim, allt frá suðurodda Afríku
til Grænlandsstvanda. Um ferðir sínar hefur
liún ritað ótal greina og flutt fjölda fyrirletra,
enda er hún vinsæl hæ'ði sem rithöfundur og
fyrirlesari. Grein sú, sem hér er prentuð, birt-
ist í janúar s. 1. í »Naturens Verden«. Hef ég
stytt hana lítið eitt í þýðingunni.
Það er einkenni á Jóhannesarborg í
Transvaal, að það virðist sem tal allra
manna snúist einungis um gull og hluta-
bréf. Allir taka þar þátt í einhverskonar
fjárgróðabralli, og allir fylgjast fullir á-
huga með því, sem gerist í kauphöllinni.
Ókunnur maður, sem gengur fyrri hluta
dags fram hjá kauphöllinni í Jóhannes-
arborg' gæti hugsað að þar heföi orðið
alvarlegt slys, ef dæma mætti eftir mann-
grúanum, sem þar er samankominn, en
þetta er daglegur viðburður, sem eldti
vekur undur heimamanna.
Jóhannesarborg er ólík öllum öðrum
bæjum í Suður-Afríku. Þeir eru allir með
lágum húsum, sem oft eru klædd báru-
járni og breiðum, trjásettum götum. Hér
ef aftur á móti bær með Ámeríkusniði,
með skýjakljúfum, ljósaauglýsingum,
sporvögnum og ótali þjótandi bifreið’a.
Bærinn hefur vaxið stórkostlega síðustu
fimni árin, og með jafn öýúm vexti mun
ekki líða á löngu að hann verði miljóna-
borg. í svipinn er hann auðugasti bær
heimsins, og hann er reistur á gulli í
orðsins fyllstu merkingu. íbúarnir virð-
ast vel efnum búnir, og fáir munu þeir
bæir hér í heimi, sem eru jafn bílaauð-
ugir.
Jóhannesarborg er aðeins 48 ára göm-
ul. Hún er stofnuð 1886, en var þá að-
eins gu 11 grafaraþorp, sem reist yar í suð-