Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Side 26

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Side 26
120 NÝJAR KVÖLDVÖKUR hann gerði enga tilraun til að smeygja lykkjunni yfir um sig aftur. Hann tók aðeins í kaðalinn með höndunum. Drengurinn gekk nú af stað. Það var létt að draga Rússann eftir ísnum. Aftur heyrðust kvíðvænlegir brestir. Kaðallinn varð skyndilega slakur, og Leslie datt áfram óttasleginn. Hann flýtti sér á fætur, hræddur um, að förunautur hans væri horfinn í hyldýpið. Petrovitch hafði einnig búizt við slysi, og í stað þess að leggja enska drenginn í nokkra hættu, hafði hann sleppt tökum á kaðlin- um, án þess að segja til þess. Leslie var nú öruggur. En kaðallinn hafði dregizt saman, er honum var svo skyndilega sleppt, og lá nú tíu fet frá Rússanum. ísinn brakaði og stundi undir Petro- vitch, þegar hann tók að skríða í áttina að kaðlinum. Leslie sá ísinn ganga í öldum undir þunga hans, meðan hann nálgaðist þuml- ung eftir þumlung. Eftirvæntingin reyndi mjög á taugarnar. Loks komst Pétrovitch að kaðlinum. Leslie hélt óðar af stað aftur og dró Rússann á eftir sér, þangað til hann komst á traustan grundvöll hinum megin við gjána. Enski drengurinn og rússneski risinn réttu báðir ósjálfrátt fram aðra hönd sína. Þeir tókust í hendur fast en þegj- andi. Þeir voru nú komnir heilu og höldnu yfir gjána. En hvernig mundi þeim ganga, er þeir færu til baka að sleðan- um? Þar sem þeir tveir höfðu rétt með naumindum komizt yfir, hvernig gátu þá tólf menn haft nokkra von um það? Þeir gengu þegjandi áfram. Aðeins stöku sinnum skiptust þeir á nokkrum orðum á frönsku. Skyndilega herti Rúss- inn gönguna ósjálfrátt. Flakið af loft- farinu bar fyrir augu þeirra. Iskofinn, sem byggður hafði verið nokkur fet frá flakinu, virtist ærið lítillr samanborið við hina stóru, brotnu og beygluðu álmhluta1) úr flakinu. Yfir kofanum blakti blái St. Andrésar- krossinn á hvítum grunni, — hinn rúss- neski fáni. Petrovitch kallaði til kofans, og óðar kom hópur manna skríða/idi út úr hon- um eins og býfluugr úr flugnabúi. Er þeir komu nær, sá Leslie, að þeir voru allir háir og þreklega vaxnir, auð- sjáanlega sönn ímynd hraustleikans;. Hann gat ekki vanizt því, að bera þá saman við hina þrautpíndu meðlimi Claude Ranworths-leiðangursins og við Petrovitch og Dmitri, þegar þeim var bjargað. Petrovitch hafði sagt, að hann hefði yfirgefið þá, er hungursneyðin vofði yfir þeim. Petrovitch flýtti sér að kynna Leslie. og þeir gengu strax inn í kofann. Hér fékk drengurinn lausn gátunnaiv. A steinolíuofni, sem búinn hafði verið til úr brotum úr loftfarinu, var tilbúin steik úr bjarnarkjöti. Skömmu eftir að Petrovitch og Dmi— tri voru farnir, hafði hvítabjörn komið að kofanum. Rússarnir höfðu ráðist á hann með hnífum sínum og ráðið skjótt niðurlögum hans. Eftir góða máltíð, sem etin var í flýti, var hafinn undirbúningur um að hverfa brott frá hinu strandaða loftfari. Almsleði, sem einnig var gerður úr brotum úr loftfarinu, var fylltur með farangri manna, nokkrum vísindatækj- um og dagbókum. Eftir ráðleggingu Pe- trovitch voru einnig teknir með tveir langir kaðlar. Það varð áköf orðasenna um sleða- hlassið. Petrovitch og tveir aðrir mæltu á móti því, að svo mikið skyldi tekið, en Aluminiumsdele.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.