Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Side 30

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Side 30
124 NÝJAR KVÖLDVÖKUR úr garði að það mátti greinilega sjá að það átti að tákna kvenmann, já, meira að segja nakinn kvenmann. Um það gat enginn efazt. Þannig varð það að minningin um Jám-Maríu, sem öllum þjónaði með lík- ama sínum, en geymdi þrátt fyrir allt sitt góða og göfuga hjarta, var gerð ó- dauðleg af höndum trúaðra. / (Höf. sögu þessarar, Pierre Mille, er alþekkt- ur, franskur rithöfundur, fæddur 1865. Hann var um langt skeið einn af aðal starfsmönnum við stórblaðið Le Temps, en hefur jafnframt þeim störfum skrifað fjölda rómana og poli- tiskra rita, aðallega frá nýlendum Frakka og Belga í Afríku. Franska akademíið verðlaunaði hann árið 1899 fyrir ádeilurit um nýlendustjórn Belga í Kongó). Jóhann Frfmann: Þegar ég var í munkaklaustri. (Niðurlag). Fáeinar hræður flýta sér niður á stöðvarpallinn. Ég tek tösku mína í snatri, kveð samferðafólkið kurteislega og skunda út. Þorpið liggur næstum neðst í fremur þröngu dalverpi á mjóum hjalla annars vegar við straumharða á. Frá stöðinni eru nokkrar tröppur upp að ganga, og er þá komið á aðalgötu bæj- arins. Hún er illa upplýst og skuggaleg; fáar hræður eru þar á ferli og engin vagnaumferð, enda er nú tekið að líða að nóttu. Skógurinn í snarbrattri fjalíshh'ðinni skyggir héðan á klaustrið, en nú liggur það að baki. Ur neðstu kjallarahvelfing- um þess má heyra dyninn af eimlestinni, •þegar þessi ásareið nútímans þeysir gegnum fjallið, bókstaflega gegnum holt og hæðir langt niður í jörðunni. Mér tekst að ná í strákhnokka á göt- unni og reyni að gera honum skiljanlegt, að ég þurfi fylgdar með upp á fjallið. Hann bendir og bandar og er óðamála; mér skilst, að hann ætli að spyrja for- eldra sína um leyfi, og svo hverfur hann út í buskann og bendir til mín, að ég skuli bíða, hann komi aftur. Ég set tösku mína niður og sezt á hana um stund. Enginn maður sést nú á ferli, en í húsun- um handan við götuna eru ljós í fáein- um gluggum. Ég staulast þangað yfir og inn í veitingakrá. Þar er dimmt og óvist- legt. Þrír menn sitja þar að drykkju. Mér sýnast þeir þorparalegir á svip, en kannske hefur það stafað af því, að ég var orðinn þreyttur og ekki laust við að geigur nokkur væri í mér. Ég náði í veit- ingamanninn og reyndi að gera honum skiljanlegt, að ég bæði hann að hringja upp til munkanna, tilkynna þeim komu mína og biðja þá að sækja mig, enda leizt mér ekki á að gista þama um nóttina, og hafði enda ekki fjárráð til óþarfa eyðslu.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.