Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Page 31

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Page 31
ÞEGAR ÉG VAR í MUNKAKLAUSTRI 125 V eitingamaðu riiin, sem var franskur, hvarf á brott, og vissi ég ekki gjörla, hvort hann hafði skilið mig, en ég sá þó þann kost vænstan að bíða átekta. Hreiðraði ég mig nú úti í horni og lét sem minnst á mér bæra. Mennirnir við borðið voru þögulir og drukku fast,.en mér virtust þeir öðruhvoru gefa mér illt auga, og hvörfluðu í huga mér ýmsar sögur um ferðamenn, sem myrtir eru til fjár á af- skekktum stöðum uppi í háfjöllum. Þótti mér því ráðlegast að taka upp budduna og hringla í koparskildingunum, svo að þeir mættu sjá, að hún var næstum tóm, og ekki feitan gölt að flá, þar sem ég var. En þeir veittu því enga eftirtekt. Fór svo fram um stund. Allt í einu er dyrunum hrundið upp og inn snaraðist hávaxinn maður í stórri, svartri kápu og með hornspangagler- augu á nefi. Hann gengur til veitinga- mannsins og ræðir við hann stutta stund á frönsku, en víkur sér svo að mér, rétt- ir mér hendina, og segir: »Sæll og bless- aður og vertu velkominn!« á hreinni og óbjagaðri íslenzku. Þessi maður var hinn mjög svo umþráttaði landi okkar, skáld- ið og rithöfundurinn Halldór Kiljan Lax- ness. Eg hefi geymt mér það þangað til nú að segja frá því, að hann dvaldi um þessar mundir — og hafði dvalið lang- dvölum áður — í klaustri hins heilaga Márusar í Clervaux; hafði ég staðið í bréfaskiptum við hann undanfarið, og hann heitið mér að veita mér alla nauð- synlega hjálp og aðstoð á meðan ég dveldi þar, enda efndi hann það dyggilega og reyndist mér hið bezta, og honum á ég það að þakka, að ég fór þó ekki alger- lega jafnvís heimleiðis, heldur nokkru fróðari um líf og háttu hinna helgu bræðra. En þarna skildi ég betur en nokkru sinni áður, að »móðurmálið á himnesk hljóð«. Við Halldór héldum nú fótgangandi upp höfðann,. og virtist mér það óraleið, í myrkrinu. Víða eru steinrið upp að ganga, en annars liggur gatan í ótal krókum vegna brattans gegnum myrkvið- inn. Halldór hafði hornlugt mikla í hendi, sem brá skímu á veginn. Síðar komst ég að því, að góður og breiður akvegur ligg- ur úr þorpinu upp til klaustursins, en upp þá hlið höfðans, sem hægust er, og er það því allmikill krókur. Eftir nokkra stund komum við að klausturmúrnum. Ég komst síðar að því, að dyravörður sá, er lauk upp dyrunum og fylgdi mér til herbergis, er hálærður verkfræðingur að menntun, en af kristilegri auðmýkt hefur hann gerzt þjónn þarna, og aldrei þegið neina hærri vígslu í klaustrinu. Nú burst- ar hann skó gestanna og er þjónn þjón- anna. Slíkir eru þeir margir. Mér var vísað inn í vistlegt herbergi, búið látlausum húsgögnum; þar var breið rekkja, með þykku, stungnu silki- teppi, í sængurstað, eins og alsiða er suður þar. Þó ég af mér ferðarykið, þáði góðan beina og skrafaði síðan við Hall- dór í klefa hans fram á rauða nótt. Barst talið vonum bráðar að skáld- skap. Halldór sýndi mér þykkan bunka af skrifuðum blöðum, sem lágu fyrir framan hann á borðinu. Kvað hann það vera nýja skáldsögu, »100 kapítula úr lífi vefarans mikla frá Kasmír«.* Hann var fullur eldmóðs og nýrra hugmynda og talaði um hve nauðsynlegt væri að varpa frá sér öllum úreltum og stirðn- uðum, fornum hugmyndum og siðakenn- ingum, og veita móttöku hinum nýju, betri og vekjandi hugmyndum, stefnum og skáldtækni, fyrir þá, sem í raun og veru girntust að verða skáld, sem eitt- hvert mark væri takandi á. »Menn verða að gleypa heiminn«, sagði hann, »og snúa * Síðar breytti hann nafni bókarinnar, svo sem kunnugt er.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.