Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Qupperneq 40

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Qupperneq 40
134 NÝJAR KVÖLDVÖKUR hundui’ náttúrleg-a. Hann er líklega vitur, gæti ég hugsað. Ef til vill fremur hann strákapöi’, eins og Peik í ævintýrinu? Kaupmaðurinn hló og flissaði. Hann var auðsjáanlega glaður yfir því, að lög- regluþjónninn virtist hafa gleymt »við- skiptunum«. — Beztu þakkir fyrir mig, sagði »bar- óninn«. Svo skipaði hann ökumanninum að aka til lögreglustöðvarinnar í bæ nokkrum þar í námd, er hann nefndi. — Well, herra lögregluþjónn. Bifreiðin þaut af stað. »Baróninn« hraut mettur og ánægður í aftursætinu. Það var verulega fagur morgunn, þeg- ar hann ók inn í bæinn og heim að lög- reglustöðinni. — Bíðið augnablik ökumaður. — Well, herra leynilögregluþjónn. »Baróninn« dró seppa með sér og stefndi inn á bækistöð óvinanna. Það varð að tefla á tvær hættur með seppa og hálsbandið ennþá einu sinni. — Ég er Eriksen leynilögregluþjónn úr leynilögreglunni í Osló, sagði »baróninn« og fitlaði við hálsbandið, svo að »Lög- reglan í Osló« gæti blasað við næturvörð- unum. Það hafði hin venjulegu áhrif. — »Ég hef verið að leita að smyglur- um í alla nótt, og ég hef ástæðu til að halda, að það verði mjög stór og góð veiði. í þetta sinn hef ég aðeins náð í einn bifreiðarstjóra. Hann situr hérna úti og flöskumar liggja í bifreiðinni. En ég þarf að flýta mér áfram, svo að þið verðið að taka við honum. Jæja, verið þið sælir á meðan. Kannske þið viljið gæta hundsins fyrir mig líka. Ég þarf ekki á honum að halda, en mun koma aftur eft- ir svo sem klukkutíma. Þá skal ég yfir- heyra bifreiðarstjórann. Þið getið sett hann inn á meðan. — Það skal gert. Næturverðimir litu á hundinn. Við skulum gæta þeirra beggja. Er hann hérna úti? — Já, ég skal nú senda hann inn. »Baróninn« gekk út til ökumannsins. — Ef þér viljið fara inn á lögreglu- stofuna, fáið þér laun yðar greidd. Ökumaðurinn þakkaði og fór inn. »Baróninn« hvarf úr augsýn fyrir næsta götuhorn. Samtalið, sem fram fór milli þáverandi yfirvalds og hins vaska bifreiðarstjóra frá Osló var upphaflega mjög blandið misskilningi. Lögregluþjónninn vildi ekki heyra minnst á nokkra launagreiðslu, en bar það blákalt fram, án nokkurrar vægðar, að ökumaðurinn væri afburðasmyglari, með fulla bifreið af bi’ennivínsflöskum. Ökumaðurinn hrópaði á Eriksen, en Eriksen kom ekki. Hann kom hvorki þá né síðar. Hann var gersamlega horfinn, og það leið alllangur tími áður en hann fannst. — Jæja, þú kemur þá og borðar mið- degisverð hjá mér. — En er þá konan þín við því búin? — Já, sei-sei, já. Við rifumst út af því heilan hálftíma í morgun. — í gær spiluðum við um peninga, þangað til klukkan tvö í nótt og ég var óvenju heppinn. — Hvað vannstu mikið? — Nei, — ég vann ekkert. En konan mín var sofnuð, þegar ég kom heim. — Hvað er það að vera fullorinn, Óli litli? — Það er þegar maður er hættur að vaxa í báða enda og vex bara um miðj- una.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.