Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Side 44

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1935, Side 44
138 NÝJAR KVÖLDVÖKUR hreinsa hánn áður en hann verður verzl- unarvara. Nokkuð af sírópinu er notað óbreytt, en úr miklu af því er unnið á- íengi, romm. Það fæst á þann hátt, að gersveppir, sem lifa á sykurreyrnum valda gerð í sykursafanum og sírópinu. Síróp og romm eru þannig aukageta við sykurframleiðsiuna. b. Sykurrófa (Beta saccharifera). Sykurrófan er af hélunjólaætt ekki ó- skyld spínati. Hún er afbrigði róí'uteg- undar, sem víða er ræktuð í Evrópu til fóðurs (runkelrófa), annað afbrigði sömu tegundar er rcmðrófan, sem lítið eitt er ræktuð hér á landi. Sykurrófan er tví- ær planta eins og gulrófan, forðarót hennar er fremur grannvaxin en furðu sykurauðug. Sykurinn er uppleystur í rótarsafanum, og er að meðaltali 18— 14% safans sykur. Til sykui’vinnslu er rófan tekin fyrra sumarið sem hún lifir, því að siðara sumarið eyðir hún, eins og aðrar tvíærar plöntur, forða sínum. Saga sykurrófunnar er merkileg fyrir ýmissa hluta sakir. Menn höfðu þekkt hana lengi hér í Evrópu, án þess að nokkrum dytti í hug, að planta þessi gæti orðið til verulegra nytja. Sá, er fyrstur hóf máls á þvi, að fært mundi að rækti hana til sykurframleiðslu, var þýzkui efnafæðingur, Marggraf að nafni. Það var 1747. Nálægt 50 árum seinna voru nokkrar tilraunir fyrst gerðar í þessa átt í Schlesíu, en árangurinn varð lítill eða enginn. En skömmu þar á eftir hóf- ust Napoleonsstyrjaldirnar með siglinga- teppu og hafnbanni, og varð þá torvelt að fá sykur í Evrópu frá sykurlöndunum fyrir vestan haf. Tóku menn því til ó- spilltra málanna við sykurrófnarækt, til að bjarga sér frá sykurskortinum, en sykur var þá farinn að verða furðu al- menn neyzluvara. Meðan á styrjöldinni stóð, gaf rófnaræktin góðar tekjur, enda þótt sykurmagn rófnanna væri ekki meira en 5—7%. Varð sykurrófnarækt algeng um þessar mundir í Frakklandi og ýmslum héröðum Þýzkalands og Aust- urríkis. Þegar styrjöldinni létti og sam- göngur urðu frjálsar á ný, gat sykurróf- an enganveginn keppt við sykurreyrinn •vestræna. Attu nú sykurrófnaframleið- endurnir erfitt uppdráttar. Þá kemur til sögunnar franskur garðyrkjumaður, Lo-u- is de Vtimorin að nafni, sem er einn af helztu frömuðum garðyrkjuvísindanna. Með kynbótum og úrvali tókst honum að skapa rófnastofna, sem vom helmingi sykurauðugari en áður þekktist, eða með 12—14% sykurmagni. Er það eitt hinna skýrustu dæma um hagnýt náttúruvísindi, og varð til þess að bjarga sykurrófna- ræktinni í Evrópu. Síðar hafa einkum þýzkir garðyrkjumenn haldið starfi Vil- morins áfram, og hefur þeim tekizt að kynbæta sykurrófna svo, að nú eru til rófnastofnar með allt að 20% sykur- magni. Helztu sykurrófnalöndin eru: Frakk- land, Þýzkaland, Tjekkoslovakia og ná- grannalönd þeirra. Þannig hefur oft ver- ið almikil sykurrófnarækt um sunnan- verð Norðurlönd, í Danmörku og Suður- Svíþjóð. Annars er loftslag fullkalt fyrir hana, þegar svo langt dregur norður á bóginn, og auk þess gerir hún miklar kröfur til jarðvegs. Það hefur annars olt- ið á ýmsu með sykuiTÓfnaræktun og syk- urframleiðslu Evrópulandanna, því að samkeppnin er hörð við sykurreyrslönd- in, sem bæði hafa auðfengnari fram- leiðslu frá náttúrunnar hendi og ódýrari vinnukraft. Þannig er talið, að einn hektari lands gefi af sér 3—4000 kg. af rófnasykri en 8—12000 kg. af reyrsykri. Framleiðslukostnaður á einni smálest reyrsykurs er á Java og Cuba 40—50 dollarar, en á einni smálest rófusykurs í Evrópu 75—100 dollarar. Tölur þessar

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.