Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Síða 6

Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Síða 6
84 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. tóku því næst allar föggur mínar, klæddu mig úr fötunum og skildu mig eftir því nær nak- inn og tnikið meiddan. En ökumaðurinn snerf við og hjelt heimleiðis e'ns og ekkert hefði í skorist og leit ekki við mjer, þar sem jeg lá svo gott sem ósjálibjarga. Jeg reyndi að brölta á fælur og skjögraði áleiðis eftir veginum; en ekki hafði jeg langt farið, þegar jeg hneig niður meðvitundarlaus. Eftir því sem síðar upplýstist, hafði maður, er þarna bjó skamt frá, fundið mig þarna og var jeg svo borinn heim til hans. Af hend- ingu þekti maður þessi Privelege lávarð og víssi, að ættarnafn hans var Simple. En að það væri mitt nafn sást á nærfötum mínum, sem merkt voru fullu nafni. Maðurinn sendi nú boð til lávarðarins og sagði ’nonum, hvern- ig ástatt var um mig. Hann greip dauðfeginn tækifærið til þess að reyna að ryðja mjer nú úr vegi fyrir fult og alt. Hann Ijet ekki lengi bíða eftir sjer, en kom fljótt og hafði einn þjón sinn með sjer og Ijest vera læknir. Jeg lá dauðvona í heilabólgu og vissi hvorki í þenn- an heim nje annan, en »læknirinn« kvað mig ferðafæran. Var jeg svo eftir hans boði færð- ur þangað, sem jeg nokkrum dögum síðar kom til sjálfs mfn. Enga hugmynd hafði jeg þó um neitt, er skeð hafði, eftir að jeg hneig niður á veginum, og þvi síður vissi jeg, hvar jeg var. Það var myrkur í herberginu og jeg gat ekkert greint af því, er inni var. Jeg þóttist vita, að jeg mundi hafa ætlað að ráða sjálfan mig af dög- um í óráðinu, því að hendur mínar voru ramm- lega bundnar. Jeg var lengi búinn að brjóta heilann um þessa hluti, þegar loks að dyrunum var lokið upp. »Hver er þarna?« spurði jeg. »Jæja, þjer eruð þá raknaður við,« sagði hranaleg rödd. »Kanske maður gefi þjer þá svolitla glætu.« Um leið og* hann sagði þetta, tók hann hlerann frá, er byrgði gluggann að innanverðu.- Nú sá jeg, að jeg lá í dálitlu hetbergi. í her- berginu, sem var hvítkalkað, var ekki nokkur skapaður hlutur, nema rúmfletið, sem jeg lá í og járngrindur voru fyrir glugganum. »Hvar í heimitium er jeg n:ðurkominn?« hrópaði jeg. Jeg fyltist ósjálfrátt geigvænni skelfingu, er jeg sá, hvern'g herbergið var. »Nú — auðvitað á vitfirringahæl nu Bedlam,« ’) var svarið. Ellefti kafli. »Alt er gott, þegar endirinn er góður.« Sögulok. Pessi tíðindi urðu mjer um megn. Jeg hneig meðvitundarlaus niður á koddann. Þegar jeg raknaði við aftur, stóð læknir yfir mjer og rannsakaði blóðhitann. Jeg grátbað lækninn að segja mjer, hvernig jeg hefði hingað komist og hvers vegna jeg væri hjet. Hann svaraði vingjarnlega og í meðaumkv- unarróm, að jeg væri hjer kominn eftir óskum vina minna. Kvað hann mig ekki skorta skyldi neitt, jeg skyldi fá alla þá hjúkrun, er kostur væri á. Jeg sagði honum hver jeg væri, og hvernig á sjúkdómi mínum slæði, en hann hristi höfuðið og fór. Jeg komst seinna að því, að föðiírbróðir minn hafði skýrt þeim frá því, að jeg gengi með þá flugu í höfðinu, að jeg hjeti Simple og væri rjetfur erfingi að eignum og lávarðar- titli Piivileges-ættarinnar. Kvað hann mig stundum hafa ætlað að þröngva sjer með hót- unum, að leggja eignir og tign í sínar hendur, og hefði jeg í því skyni troðist emu s:nni inn á heimili sitt. Að öðru leyti kvað hann mig meinleysisrolu, rólegan og, að því er virtist, oftast með fullu viti. ‘) Bedlam (eiginlega Betlehem) er alþekt geð- veikrahæli í Lundúnaborg. Þetta var fyrst klaustur, stofnað 1246. En klaustrið var gefið Lundúnaborg, er klausturlíf var afnumið á Englandi. Þýð.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.