Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Síða 14

Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Síða 14
92 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. »Hvað viljið þjev að jeg geri? Jeg á ekki við hlutabrjefin, heldur gagnvart ungfrú Bech.« >Rað er ekki mitt að að ráðleggja yður í þessu máli, kæri Steele. Rjer eruð heiðurs- maður. Rjer hafið gert yður sekan í glappa- skoti, sem ef til vill getur varðað hamingju saklausrar slúlku. Nú eigið þjer eigi heimt- ingu á, að jeg skýri þetta nánar. Nú er yðar hluti eftir.* »Hvar eigið þjer heima?« »Á Qrand Hotel.« jRá ætla jeg með yðar leyfi að heimsækja ungfrú Bech kl. 4 á morgun, ef þjer haldið, að sá heimsóknartími sje viðeigandi.* Hinn feiti óbersti þrýsti hendi Steele sýni- lega í geðshræringu. »Pjer eruð heiðursmaður,« mælti hann. »Pegar þjer hittið frænku mína, megið jajer eigi láta hana vita, að jeg hafi talað við yður.« »Pað megið þjer reiða yður á.« »Heyrið þjer, Steele, svo að við snúum okkur að viðskiftunum, þá segið mjer hvað þjer ætiið að gera við þessi Northern Pvcific hlutabrjef, sem þjer eigið? Jeg skal gjarnan kaupa þau eða selja þau fyrir yður, ef þjer viljið.« »Jeg get ekki selt þau sem stendur, óbersti.« »Jeg tók svo eftir, aðþjerættuð þau ennþá.« »Pað er satt, en jeg kæri mig ekki um að selja þau sem stendur.« »Pað er háskalegt að bíða með söluna, Steele.« »Jeg veit það,« svaraði Steele í málróm, sem greinilega gaf til kynna, að um þetta var gagnslaust að ræða, Bech óbersti stóð því á fætur og kvaddi með svo mikilli ástúð, að það gekk næstum úr hófi og skildi Steele eftir í þungum þönkum. Tímans tönn hafði eigi b tið mikið á ung- frú Sadie Bech. Hún heilsaði Steele glaðlega, en það var dálítill þunglyndisblær í rödd hénnnar. »Jeg hitti frænda yðar af tilviljun í gær- kvöld og hann sagði mjer, að þjer væruð í Neapel, svo að jeg bað leyfis að mega heim- Sækja yður,« »Já, hanri sagði mjer, að hann hefði hitt yður,« svaraði hin unga stúlka b'ált áíram. »Mjer er sönn ánægja að sjá yður aftur, því, eins og þjer munið, tkildum við næstum í reiði;« og Sadie leit blám augunum andaitak framan í hann og andvarpaði við. »Ungfrú Bech — « hóf hann máls, er hún tók fram í fyrir honum með skjálfandi rödd og tárperla glitraði á hvarmi hennar. »Fyrrum nefnduð þjer mig Sadie.« »GömIu dagarnir eru að eilífu gleymdr.* Pessi orð voru síðasta tilraun hans til að losa sig úr þeim læðingi, sem hann var að fjötrast í, og hann tann að það var dónalegt af sjer, að hafa sagt það. Áhrif þeirra voru auðsæ á ungu stúlkunni. Hún hnje niður að borðinu, grúfði sig niður »í hendur sínar og grjet biturlega. »Ó, ekki að því er mig snertir — ekki að því er mig snertir — « andvarpaði hún. »Pjer hafið et til vill gleymt umliðnum dög- um. — Já, þeim hafið þjer áreiðanlega gleymt. Yfirgefið mig því og látið mig í friði með endurminningar mínar! Hvers vegna? Ó, hvers vegna komuð þjer og heimsóttuð mig aftur ?« Petta reið baggamuninn. Hann lagði hönd sína á öxl henni og talaði um fyrir henni. Hálftíma síðar kom Steele út úr gistihúsinu og hjelt beint til ameríska sendiherrans. »Halló, gamli vinur! Hvað gengur að yður?« hrópaði James Stohes. »Pjer eruð ná- hvítur yfirlitum eins og vofa.« »Pað gengur ekkert að mjer. Svaf illa í nótt sem leið. Jeg heimsæki yður aðeins til að biðja yður að gleyma sumu af því, sem barst í tal í gær.« »Pað er hægur vandi. Má jeg spyrja hvað það er, sem jeg á að gleyma?« »Því sem jeg sagði um Bech óbersta. Jeg hafði misskilið hann. Hann hefir skýit mála- vöxtu fyrir mjer.« »Nú, svo það hefir hann geit. Eigið þjer við það^ að hann hafi eigi neitað yður um þessa 20 þúsund dollara?«
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.