Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Side 47

Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Side 47
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 125 una; það eru ágæt veiðivötn og veiðilönd í nágrenninu.* »Mjer er lítið um það gefið, að fara hálfa þriðju dagleið frá símanum.* »Þá ættuð þjer heldur að vera kyr i Ch:cago.« Steele hló. »Þjer eruð dugleg, ungfrú Fuller, og mig furðar, að þjer skuluð eigi með eigin bolmagni hafa gert námuna arðberandi.« »Jeg er að því núna,« mælti hún í ögrandi róm. Ungi maðurinn hló aftur. »Er það? Við karlmer.n erum ætíð í bobba, þegar við þurfum að tala um viðskifti við konur. Jeg ætla því að tala við yður eins og þjer væruð systir mín og vona, að þjer þykkist eigi yfir því.« »Alls eigi.« »Jæja. Vitið þjer hvað það er, sem nefnter söltuð náma?« »Já, það veit jeg vel; en mig minnir, að þjer segðuð, að þjer bæruð eigi skynbragð á námur? Söltuð náma er það kallað, þegar látið hefir verið gall í hana, til þess að gabba með því flón.« »Alveg rjett, ungfrú Fuller, og þar sem jeg er flón, að því er námur snertir, væri það hægur vandi að gabba mig.« »Þá getið þjer tekið sjerfræðing með yður, sem sagt gæti yður, hvernig alt væri í raun og veru.« »Jeg vantreysti sjerfræðingum enn meira en söltuðum námum.« Unga stúlkan andvarpaði. »Mjer finst eins og öll trú vera horfin úr Chicago?* »Það hefir hún gert — að því er gullnámur snertir.t »Ffr. Steele, jeg ætla að tala við yður eins og jeg væri systir yðar. Hafið þjer nokkurn tíma unnið nokkra nytsama vinnu?« »Já, jeg hefi unnið við járnbraut.« »Gott. Farið þá lil Blach Hills, takið námumannaföt með yður, og gerist vetkamaður eða formaður föður míns nokkurn tíma. Gangið svo inn í námuna og látið brjóta hana í hvaða átt sem þjer viljið. Þegar þjer hafið unnið þannig mánaðartíma, þá takið sýnishorn á ýms- um stcðum, og lálið rannsaka þau. Engin náma verður söltuð á þann hátt, en ef alt fjallið væri saltað með gulli, gerðuð þjer rjelt- ast í að kaupa það.« »Enginn getur mótmælt uppástungu yðar, ungfrú Fuller, en hreinskilnislega sagt, er jeg hræddur við að ferðast hálfa þriðju dagleið frá járnbrautinni.* »Þjer skuluð eigi óttast ferðina. Jeg skal verða leiðsögumaður yðar.« »Hvað?« hrópaði Steele undrandi. »Jeg skal leiðbeina yður frá járnbrautinni til »Hard Luch« námunnar. Viljið þjer þá fara?« spurði hún með dálít ð ögrandi hreim í rödd inni.« »Hvort jeg fer?« hrópaði hann hrifinn. »Auðvitað ferðast jeg með yður, jeg get ekk' hugsað mjer neina meiri ánægju. En — á hinn bóginn — er það tilhlýðilegt, að ung stúlka — « »Jeg veit hvað þjer ætlið að segja. Þjer talið nú ekki við bróður minn, heldur við systur hans. Jeg hefi alia æfi orðið að sjá um sjálfa mig og föður minn. Mál þetta varðar mig svo miklu, að jeg skelli skollaeyrum við því, hvað almenningur kynni að segja um fram- ferði mitt. Jeg tek tjaldið mitt með mjer og gamlan mann, sem hefir þjónað föður mínum áratugum saman. Þetta er hreipt og beint viðskiftamálefni og jeg verð að sleppa að taka tillit til nokkurs nema þess eins. Við skulum því snúa okkur að málinu. Þjer buðuð mjer áðan 1000 dollara og jeg afþakkaði boðið. Ef þjer nú viljið láta mig fá nauðsynlegt fje frá 200 dollurum og upp eftir, eftir því hvað þjer viljið hafa með yður, þá fer jeg undir eins til Þichaxe Gulch, sem er næsta járnbrautarstöð við »Hard Luch« námuna og safna þar öllu saman, sem þarf í leiðangurinn. Svo bíð jeg þar eftir yður. Takið þjer þjóna með yður?« »Jeg tek Sam Jackson með mjer; hann er blámaður en annars besti matreiðslumaðurinn hjer í bænum.«
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.