Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Side 56

Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Side 56
134 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. lon og þær breytingar á ýmsum peningamál- um, er hinn skyndiiegi dauði hans mundi valda. ímyndunarafl fólksins fjekk nóg að sýsla, af því, að hið hræðilega vald, er Peter Berr- ington hafði farið raeð í næstum 50 ár, fjeil nú í hendur ungri stúlku, 24 ára að aldri, einka- barni auðkýfingsins, Constance Berrington að nafni. Blöðin prentuðu dálk eftir dálk um þessa ungu stúlku, er virtist lifa enn einsamara iífi en faðirinn. Rau prentuðu af henni myndir, sem á engan hátt líktust hver annari — myndir, sem voru alt frá fegurstu konu í heimi og til hinnar Ijótustu; mátti af því ráða, að engin mynd var til af ungfrú Berrington, og að þær sem birtar voru, voru aðeins eftir ímyndun. Hún forðaðist fjelagslíf, Ijet aldrei sjá sig á skemtistöðum og hjelt, að inngangur í leikhús væri sama og dyr vítis. Munnmæli sögðu, að hún væri hrædd við að giftast vegna peninga sinna og að hún, þrátt fyrir aldur sinn, hataði karlmenn. Sagt var einnig, að hún hefði sam- visku, en það höfðu jafnvel hinir skáldlegustu menn eigi Iátið sjer detta í hug um föður hennar. Sagt var, að hún ætlaði að nota auð sinn til að bæta fýrir afbrot fðður síns. »Hún er trúhneigður ofstækismaður,« sagði blað eitt. »Hún er eins og hver önnnur ung stúlka,« sagði annað blað, »sem erft hefir peninga föð- ur síns, en ekki vit hans.« Pegar Steele sá, að hann gat eigi varist að hugsa um ástæður sínar, er höfðu eyðilagt lífs- starf hans, ákvað hann, þareð hann óttaðist, að þetta annars endaði á vitfirringu, að heim- sækja þessa ungu stúlku og fá hana til að hætta ofsókninni, er hann áleit sig verða fyrir og sem á hverri stundu gat eyðilagt líf hans og vit. Pó virtist það fremur hugleysislega gert af fullþioska manni, að gera ungri stúlku slíkar tillögur, sem var ókunnug honum, og sem, ef það í raun og veru hepnaðist honum að ná tali af henni, mundi að öllum líkindum reiðast yfir því, að föður hennar yrðu kendir slíkir glæpir, án þess að nokkrar sannanir væru fram bornar. Samtal þeirra mundi því senni- lega enda þannig, að hún Ijeti þjóna sína fleygja honum út. Og enda þótt hún tryði honum — og líkurnar fyrir því voru eins og 1: 1000 — hafði hún þó vald í orði og á borði til að stöðva ofsóknina. Var hún eins og rússneski einvaldinn, hjálparlaus stjórnandi fjelags, sem, þótt talinn væri stjórnandi þess, eigi rjeði neinu? En Sleele var eigi í neinum efa um, hver var potturinn og pannan í árásum þessum. Hann var viss um, að það var Nicholson. Tvisvar hafði Sleele sigrað Nicholson. í hveiti- braskinu hafði hann komið upp um hann ódrengskap og svikum og sýnt hann í sinni rjettu mynd, sem samviskuiausan þorpara, og varnað honum að græða miljónir króna í einu vetfangi, alt var undirbúið og gróðinn viss, hefði Steele eigi komið til skjalanna og eyði- lagt alt saman. Hann hafði lítillækkað mann- inn og sært stolt hans og sjálfsvirðingu. Var það þá hugsanlegt, að hann gæti sæst við mann, sem auðvitað hlaut að vera bálreiður við hann. Steele ákvað samt sem áður að gera tilraun. Tvisvar hafði hann gengið með sigur af hólmi og svo hafði hann öflugt vopn í hendi, þar sem var birting á viðureigninni. Porði Amalgameret-sápa, þegar öllu var á botninn hvolft, að eiga það á hættú, að skrif- að væri um málið frá þeirri hlið, sem Steele gat satt hin frjettaþyrstu dagblöð með? Var það nú víst, að fólkið tiyði eigi sögu þeirri, er hann gat sagt um Amalgameret-sápufjelagið? Jafnvel þótt N'cholson væri fullur fjandskapar, mundu fjelagar hans verða auðfúsir til sátta. Peir mundu efalaust reyna að fá hinn reiða mann til að þegja. Hann ákvað að stinga upp á því við Nicholson, að þeir semdu frið. En þá kom efinn. Ef Nicholson gengi að friðarboðinu, mundi hann þá halda friðinn, eða mundi hann aðeins nota hann eins og svæf- andi meðal 11 að stinga mótstöðumanni sínum svefnþorn? Slíkt var rrjög sennilegt, en samt var engu íspilt, að tala við hann, þar sem Steele hafði einssett sjer að láta N cholson eigi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.