Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Síða 57

Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Síða 57
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 135 hafa áhrif á sig á einn eða annan hátt. Steele rifjaði upp fyrir sjer andlit þessa manns og gekk þess eigi dulinn, að það var gagnslaust að skírskota til samvisku hans eða biðja hann vægðar. Nicholson var jafn tilfinningalaus og pýramidarnir; það var gagnslaust að ælla sjer að komast að samkomulagi við hann, nema að bjóða einhver fríðindi á móti. Hann fór því eigi strax til New York ti! þess að fleygja sjer fyrir fætur forlagahefndarinnar, refsingar- innar og hefndarinnar guði, en tók að bÚ3 sig undir, að hafa það á höndum, sem hann ætl- aði að versia með við þennan hvíta Indíána. Hann fann til ánægju yfir því, að geta þó loks eftir margra mánaða hik og efa, tekið fasta ákvörðun um eitthvað. Steele hafði engar stúlkur á skrifstofu sinni. Trúnaðar-hraðritari hans var rólyndui maður, dálítið eldri en hann sjálfur, að nafni Henry Russel. Steele hringdi, og Russel kom inn með bók í hendinni. »Fáið yður sæti, Russel. Ef jeg man rjett, voruð þjer áður starfsmaður við blað?« »Jeg var aðeins frjettaritari.« »Segið ekki »aðeins«. Frjettaritari er eigi minni staða en ritstjóraskrifari. Hafið þjer nokkurntíma reynt að skrifa skáldsögu?» »Nei, herra.« »En þjer eruð þó kunnugur bókmentum og vitið, hvernig bók er samin, geri jeg ráð fyrir.« »Jeg hefi ekkert vit á að semja bækur, en jeg held, að jeg geti sett sæmilega í stíl.« »Já, það er aðalatriðið. Sem frjettarifari hafið þjer einnig sjeð sitt af hverju og á seinni árum hafið þjer kynst viðskiftum hjá mjer.« »Rað er satt, hr, Steele.« »Hald:ð þjer ekki, að þjer gætuð gert upp- kast að skáldsögu um dagleg viðskifti, eins og þær, sem nú eru mest lesnar? Bók, sem fjallaði um nautnir, gullgræðgi og alt sem af því_, leiðir. S3tnviskulausa menn og æfintýra- kvendi, er eigi ættu s'nn líka í fegurð. T. d. eins og stúlkuna, sem kom hingað fyrir rúm- um hálfum mánuði.«* »Jeg man vel eftir henni. Hún leit vel út.« »Hún var óviðjafnanlega fögur, fanst mjer,« mælti Steele um leið og hann stakk höndum í vasa og tók að ganga um gólf. »Nú, haldið þjer ekki, að slík fegurð gæti aukið svo á andagift yðar, að þjer treystuð yður að rita góðá bók?« Russel hristi höfuðið. »Jeg er hræddur um, að jeg sje eigi maður til þess, hr. Steele.« »Rað er ekkeit að gera sem stendur,« mælti Steele. »Pað var tilætlun mín, að vera í sum- arleyfi, en lífið á fjöllunum reyndist of æsandi, of leiðinlegt á jeg við, og þess vegna kom jeg fyr en gert var ráð fyrir. Sjáið nú til, Russel — það er, milli okkar sagt, ekkert jafn broslegt til og kaupsýslumaður. sem reynir að skrifa skáld^ögu, en jeg er nú svo gerður, að jeg get ekki verið iðjulaus, og það eru engar líkur til, að nokkuð verði að gera í nánustu framtíð. Jeg hefi þess végna hugsað mjer að eyða tímanum í að skrifa skáldsögu og vil gjarnan fá yður til hjálpar. Jeg skal lesa fyrir yður efnið, en þjer búið til nöfnin og setning- arnar.« »Jeg skal gera hvað jeg get, herra.« »Og munið nú eftir því, Russel, að þjer megið eigi tala um þetta við nokkurn mann. Allur bærinn mundi hlægja að mjer, ef það bærist út, að jeg hefði farið að yrkja, í stað þess að braska í hveiti.« »Jeg skal steinþegja, herra.« »Jeg veit það og þess vegna treysti jeg yður. Nú lokum við og neitum, að við sjeum heima, hver sem að garði ber. Ef skáldsögu á að verða vel tekið nú á dögum, þegar menn hafa svo mikið að lesa, verður hún að vera eins æsandi og unt er, og það skal þessi bók verða. Jafnvel þótt tilraunin mishepnist, er tjón eigi mikið, og nú drögum við okkur út úr solli veraldar dálítinn tíma og hjúpum okk- ur í sömu dulaifullu tilverunni og raunveruleg skáld eru vön að gera.« Dag eftir dag unnu þeir svo að bókinni, uns hún var búin og vjelrituð. Pegar prófarkir höfðu verið lesnar, Ijet Steele afrita haua þann-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.