Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Side 77

Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Side 77
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 155 bliki segði við sjálfan sig, að í raun og veru stæði sjer alveg á sama um þetta alt. Regar leikurinn var á enda, hrópaði leikstjór- • inn: >Nú byrjum við aftur og í þetta skifti í alvöru. Eruð þjer til, Baker?« Myndtökumaðurinn hneigði sig. »Komið svo með skammbyssuna,« mælti leikstjórinn og sneri sjer að skyrtuklæddum manni, sem virt:st vera undirtylla hans. »Við getum ekki látið okkur nægja ímyndaða skamm- byssu, þegar um alvöru er að ræða.« »Já, skammbyssan, skammbyssan. Guð má vita hvað orðið ér af henni,« sagði undirlyll- an. »Hún lá fyrir augnabliki hjerna á bekknum.« »Jeg er með hana hjerna í vasanum,« svar- aði Grain skyndilega um leið og hann benti á treyjuvasa sinn.« »Golt, þá byrjum við,« kallaði leikstjórinn í skipandi róm og Baker setti kvikmyndavjelina í hreyfingu. »Verið þjer nú ekki viðkvæmur, ungi mað- ur,« hrópaði leikstjórinn. »Rað gekk ágætlega áðan. Og í guðs bænum flýtið yður ekki of mikið. Gefið yður tíma til alls. Munið að- eins eftir, að eftir stutta stund ætlið þjer að skjóta yður og látið ah, sem þjer- gerið, bera blæ af þeirri hugsun. — Petta er gott. ^ — Afbragð ! — — Nú fallið þjer á knje og ákall- ið himininn um fyrirgefningu fyrir þá synd, sem þjer ætlið að drýgja. — — Setjið yður svo aftur á bekkinn — — nú standið þjer upp aítur og með skjótri hreyfingu þrífið þjer skammbyssuna úr vasa yðar og skjótið yður. — — — Nú !« Hendi Grains hvarf niður í vasann — — hann dró skammbyssuna upp — — — miðaði henni’á gagnaugun og — — — — — — — — — Pað varð alt-í einu svo undar- lega hljótt meðal áhorfendanna, þegar líkami Gra:ns hnje til jarðar og lá þar alveg hreyf- ingarlaus. Enj svo komu spurningarnar: »Guð minn góður! Hvað hafði skeð? — — Skaut hann sig í alvöru? — — Er h3nn dáinn — ?« Margt af kvenfólkinu varð frávita af hræðslu og karlmennirnir litu alvarlega og spyrjandi hver til annats. Leikstjórinn og Baker voru hinir fyrstu, er komu þangað, sem Grain lá. »í hamingju bænum, hvað á þetta að þýða?« mælti leiksijórinn bæði hryggur og reiður. »Skammbyssan var þó til allrar hamingju ekki hlaðin.« Baker kraup niður við hliðina á Grain og lyfti höfði hans varlega með annari hendi. Með hinni hendinni þreifaði hann á hjarta hans. Var svona að vera á himnum? Græn trje, sem teygðu blómkrónur sínar yfir höfuð manns, lágar raddir, sem hvísluðu, og mjúkar og hlý- legar hendur, sem hagræddu og hjúkruðu. ,Pá var nú ekki svo vitlaust að deyja þrátt fyrir (It. Einn málróminn þekti hann vel. Hvar hafði hann heyrt hann áður? Nú var það ókunn rödd, sem sagði: »Veslings maðurinn! Hann hefir víst átt mjög bágt. Guð einn veit, hvað gengið hefir að honum. En það er nú alveg sama. Hlutverkið Ijek hann afbragðsvel.* »Já, þar er jeg alveg sömu skoðunar,* sagði rðddin, sem hann kannaðist við, »og nú er jeg einmitt að brjóta heijann um, hvort við höfum ekki nokkur smáhlutverk, sem við getum látið hann leika; Rá getum við haft hann hjá okkur og sjeð til hvers hægt er að nota hann.« »Jú, auðvitað höfum við það. — Ekkert er hægara en að kippa því í lag.« Grain fann undarlega suðandi tilfinningu í öllum líkamanum. Pað var þó skrítið! Maður gat ekki haft svona tilfinningu, ef maður var dauður. Hann sneri sjer á hliðina og opnaði fyrst augun örlítið, en eftir 'augnablik urðu þau galopin, því að hann horfði beint í hin bláu augu stúlkunnar með gullhárið. »Ó, þetta er svo leiðinlegt og sorglegt,« sagði hún, en brosti um leið, svo að sorg hennar virtist ekki eiga djúpir rætur. »Finnið þjer mikð til í höfðinu?« 20*
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.