Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Page 80

Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Page 80
158 NÝJAR KVÖLDVÖ R. s. o. s. Eftir: Irving Ray. (S.Ö.S. = »Stop other sirvice«, sem þýðir: í hættu. Skip þau, er loftskeyti hafa, senda þessa stafi út, þegar þau eru í hættu stödd. — Þýð.) Svo mátti kalla, að allir farþegarnir væru gengnir (il hvílu eða að minsta kosti hosfnir af þilfarinu inn í borðsalina að undanskildum sjómannaprestinum síra Austin og mjer, sem vorum í djúpri samræðu um hugsanaflutning. Rað var málefni, sem við báðir vorum mjög hrifnir af og þess vegna dvaldist okkur lengur á þilfarinu en öllum öðrum. Rað var því orð- ið framorðið og með því að farið var að hvessa, stóðum við upp og ætluðum að ganga til klefa okkar. En er við vorum að leggja af stað, heyrðutn við kvenmannsrödd, er hrópaði: »Hvar er Ioftskeytamaðurinn ? Ó, hvernig á jeg að finna Ioftskeytamanninn ?* Ung kona, sem augsýnilega var lítið klædd innan- undir kápu þeirri, er hún hafði varpað lauslega yfir sig, og sem hvorki var í sokkum eða stígvjelum, en aðeins á inniskóm úr silki, kom hlaupandi til móts við okkur. Hún skalf af kulda og tennurnar glömruðu í munni henn- ar, svo að jeg þreif í skyndi ferðaábreiðu mína og lagði hana yfir herðar henni. »Hvað hefir komið fyrir?« spurði presturinn með hinni mjúku og hljómfögru rödd sinni. »Jeg veit það ekki — — jeg get ekki skýrt frá því,« svaraði konan. »Jeg veit aðeins það, að eitthvað hefir komið fyrir manninn minn. Ó, segið mjer, hvar jeg get fundið loftskeyta- manninn.« »Pjer meinið læknirinn,* sagði presturinn rólega. »Nei, nei, jeg meina loftskeytamanninn. Jeg verð að senda loftskeyti til mannsins míns. Hann er ekki hjer um borð. Hann er á »A1- exandríu«.«: »Á »A!fxandríu« ?« hrópuðum við báðir forviða. »Já, hann varð skyndilega að ferðast til Suður Evrópu,« sagði konan. »Við vorum á brúðkaupsferð okkar, og svo fanst honum, að jeg ætti að dvelja hjá foreldrum mínum í Dan- mörku rneðan hann skryppi suður eftir. Við komum bæði frá New-Yoik — maðurinn minn er Ameríkumaður og jeg hefi verið þar vestra nokkur ár sem hjúkrunarkona — en það voru mjög áríðandi verslunarstöif, sem hann ætlaði að reka þar syðra, og taldi því rjettara, að jeg dveldi heima á meðan — við vorum einmitt nýkomin þangað — og svo átii jeg að ferðast suður eftir á eftir honum og hitta hann um borð í »Alexandríu«, en af einhverjum mis- skilningi kom jeg of seint, svo að skipið var farið, þegar jeg kom, en það lágu boð fyrir mjer á afgreiðslu skipsins um, að jeg skyldi fara með þessu skipi, sem færi næsta dag — og — og — ó, segið mjer hvar loftskeyta- maðurinn er.« »Já, jeg skal fylgja yður þangað,« sagði presturinn og við lögðum öll þrjú af stað áleiðis til loftskeytaklefans á framanverðu skipinu. »Og maður yðar gat ekki beðið eftir þessu skipi ?« spurði presturinn. »Nei, það hefir hann alls ekki getað, því að annars gætuð þjer verið viss um, að hann hefði gert það,« svaraði konan. »En »Alexandría« er bæði stærri og hraðskreiðari en okkar skip, og kemur þess vegna miklu fyr til New-York, enda þólt við sleppum þvi, að það fór 18 klukkustundum á undan okkur af stað. Og maðurinn minn verður að vera kominn til New York innan ákveðins tíma. Jeg veit, að það er mjög áríðandi fyrir hann.« »Alexandría« hafði farið frá G braltar 18 kl,- stundum á undan okkur og var því rúmlega
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.