Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Page 82

Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Page 82
160 NÝJAR KVÓLDVÖKUR. augnablik bælti hann við: »Ó ja', það er alveg rjett. Pað skip er rjett á undan „Alexandiíu"." »Já, aðeins fimtíu mílum eða um það bil,« svaraði Craig, skanske ekki nema fjörutíu. En það hefir nákvæmlega sömu stefnu og »AI- exandría« og hefir sama hraða, svo að það er hoifið sjónum þeirra, eða svo sagði starfsbróðir minn á »Alexandríu« mjer áðan. Hjelt að það væri ,,Huron“, þegar jeg svaraði honum. Hann hefir nú án afláts upp á síðkastið kalíað á „Huron“, en ekki fengið ne tt svar. Jeg skil samt ekkeit í því, því að jeg talaði við loft- skeytamanninn á ,,Huron“ rjett áður en jeg fór að sofa og við höfðum ágætt samband.« »En þá hlýtur hann að vera genginn til hvílu,« sagði yfirmaðurinn, »og er kanske búinn að sofa lengi. Hvað er langt síðan að þjer töluðuð við hann?« »Ja, hvað er klukkan núna? — fjórðung gengin td eitt. Pá eru rúmlega tveir tímar síðan, því að jeg talaði við hann rjetl áður en jeg lokaði klefanum hjerna, og það gerði jeg klukkan 10.« »Og nú hefir ,,Alexandría“ reynt að kalla á ,,Huron“ síðan þe>r urðu eldsins varir i lesf- inni,« sagði jeg, »og hafa ekki fengið ne tt svar?« »Já, að nvnsta kosti síðan þeir gengu úr skugga um, að þeir gætu ekki ráðið við eld- inn,« svaraði Craig. Hann sneri sjer því næst að yfirmanninum og spurði: »Á jeg að segja »Alexandríu« að það vorum við, sem svöruð- um þeím áðan, og að þeir ættu að snúa við á móti okkur, svo að við gætum gert tilraun til að ná þeim áður en það er orðið of seint ?« »Guð hjálpi yður, maður! Hvað hugsið þjer? Pótt bæði þjer og við ykjum hraðann eins og framast væri unt, mundi það taka átta klukkustundir að mælast. — Eti segið þeim, að þeir skuli látlaust halda áfram að kalla á »Huron«, þar til þeir fái'svar.« >En við fáutn ekkert svar, ef loftskeytamað- urinn er ekki í klefanum — já, og þótt hann væri í klefanum, gæti hann ekki heyit kallið, ef hann hefði ekki heyrnartólin við eyrun, Pað eru alls engar likur til, að nokkur nái í loft- skeytamanninn á »Huron«, ef hann er farinn að sofa. Hvernig í ósköpunum ætti maður að geta þaó?« »En það er þó eina vonin fyrir þá,« sagði yfirmaðurinn í örvæntingarómi. »Hvað getum við gert annað en að ráðleggja þeim það?« — — JeS gekk niður á þilfarið til þess að líta eftir koaunni, sem presturinn hafi tekið undir vernd sína. Jeg hitti þau bæði á sama stað, sem presturinn og jeg höfðum setið á, þegar við fyr um kvöldið ræddum um hugs- anaflutning. Margir af farþegunum voru nú komnir upp á þilfar til þess að fá vitneskju um, hvað á seiði væri, því að það hafði fljót- lega kvisast, að eitthvað voðalegt hefði komið fyrir, en engin vissi með vissu hvað það var, og þegar jeg kom niður úr Ioftskeytaklefanuni, herjuðu þeir á mig með reglulegt moldviðri af spurningum, sjerstaklega þó konan, sem hafði verið orsök þess, að við vissum yfir höfuð nokkuð um þetta slys.« »Ja, jeg get nú ekki sagt ykkur mikið,« sagði jeg, »en að minsta kosti hafa þeir ekki enn sert skeyti um, að neinn sje særður eða dauður á »Alexandríu,« og það er þó mest varið í það, og þeir vonast eftir að komast í samband við gufuskipið »Huron,« sem er 40 — 50 mílur á undan þeim. Reir gera alt, sem í þeirra valdi stendur, t l þess að kalia á það til hjálpar — og við getum ekki gert annað en að vona með þeim að það takist. Sjálfir getum við ekkert gert fyrir þá. Við erum alt of langt í burtu til að geta verið þeim til nokkurrar hjálpar.« Pegar jeg hafði skýrt frá þessu, fór jeg aftur upp í loftskeytaklefann. Loftskeytamaðurinn sat stöðugt fyrir framan viðtökutækin með heyrnartólin við eyrun og vonleysið skein út úr hor.um. »Heyrir hann stöðugt S. O. S. hrópið?« spurði jeg, þegar jeg kom inn. Yfirmaðurinn, sem jeg beindi spurningu minni til, kinkaði kolli. »Stöðugt það sama,« sagði Craig fullur ör-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.