Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Page 88

Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Page 88
166 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. En Signe er nú ekki eingöngu falieg, hún er líka gáfuð.« »Mjer finst hún hafa verið komin í talsveiða klípu,* mælti jeg. Mjer var farin að leiðast sagan. »Hvernig fór hún að því að velja á milli ykkar?« »Hún valdi þann, sem meira hugrekki hafði,« mælti Carstens og brosti. Jeg virli Carstens nákvæmlega fyrir mjer. »F*að er satt, hún valdi þann, sem hugrakk- ari var,« hjelt hann áfram og mjer virtist helst vera hæðni í röddinni. »Signe lagði gildru fyrir okkur. Rað var um sumar og við eydd- um mesta hluta dagsins við mylnutjörn, sem var þarna. Á henni var róðrarbátur, og eigin- lega var sú eina skemtun, sem hægt var að veita sjer þarna, að róa honum um tjörnina. Við mylnutjörnina var mylnuhjó! og örmjó brú yfir. Nei, vertu nú ekki hræddur. Pað kom ekkert fyrir við mylnuhjólið. Kvöld nokk- urt í júlímánuði fylgdumst við öll þrjú að »við mylnutjarnarinnar strönd,« eins og stendur í kvæðinu. Og um kvöldið sagði hún já við bónorði mínu.« »Hvers vegna? Hvað skeði þá?« »Signe fjell í tjörnina, þegar við fórum yfir brúna.« Pað var þögn um stund og jeg beið þolin- móður eftir framhaldinu. »Báturinn var einhverstaðar í fjáranum,« hjelt hann áfram, »Signe og Haraldur Petersen voru að fara yfir brúna, þegar hún alt í einu fjell í tjörnina. Meðan þessu fór fram hafði jeg dregist aftur úr og var að binda skóþveng minn og vissi fyrst hvað skeð hafði, þegar Pelersen rak upp ógurlegt angistaróp. Tjörnin var sex álna djúp, þar sem hún datt í hana. Ef þessar mylnutjarnir væru ekki til, myndu þorpsblöðin úti á landínu veslast upp, því að þá gætu þau ekki flutt fregnir um sly=farir við baðanir og skautaferðir. Jeg sá Petersen beygja s;g, eins og hann ætlaði að taka af sjer skóna, en svo rjetti hann úr sjer, fórnaði höndum og hiópaði á mig. H;nn var alveg utan við sig. »Jeg kann ekki að synda,« öskraði hann, »jeg kann ekki að synda . . . « Tveimur sekúndum seinna lá jeg í mylnutjörn- inni, spriklandi og hvæsandi. eins og rostung- ur á sunnudagsmorgni, þegar kirkjuklukkurnar hringja til morgunguðþjónustu, og gleypti hvern munnsopann, — eða rjettara sagt hverja vatns- fötuna — eftir annan af vatni, en um leið reyndi jeg á einhverju hundasundi að komast þangað, sem jeg sá á höfuð Signe.« Jeg lagði vindilinn frá mjer og glápti á Carstens. »Og þú, sem ekkert kant að synda?« »Ekki minstu vitund. Ekki frekar en blá- grýtissteinn. Manstu ekki ekki eftir, hvað Simon- sen skammaði mig af því að jeg gat ekki lært að synda. Mjer var gersamlega ómögulegt að læra það.« »En þrátt fyrir það bjargaðir þú henni?« »Nei, það var hún, sem bjargaði mjer og það á síðustu stundu. Pegar hún var gengin úr skugga um, hvernig ástatt var með sundkunn- áttu mína, tók hún nokkur hraustleg sundtök í áttina til mín, greip í treyjukraga minn — auðvitað með rjettum björgunartökum, eins og þú gelur skilið — skipaði mjer að vera ró- legum og synti svo með mig í land. Og alt þetta gerði hún eins hiklaust og rólega eins og gamla frænka þín dró þ'g inn á eyrunum í gamla daga, þegar þú hafðir verið of lengi úti á kvöldin,* »Ja, hver skollinn,« sagði jeg hægt. »Jeg verð að játa það, að konan þín hefir í raun og veru gifst hugrökkum manni.« »Nú, hvcð,« sagði Carstens hógværlega. »Petta er ekki umtalsvert. Jeg átti hvort sem var ekkeit á hættu.« »Áttirðu ekkeri á hæltu? Pú hættir þó lífi þínu,« sagði jeg. Carstens ypti öxlum með þessum einkenni- lega lítillætissvip, sem jeg kannaðisl svo vel við frá fyrri dögum. Hann hefir alt af verið hógværðin og lítillætið sjálft. »Jeg vissi auðvitað að hún var synd eins og selur,« sagði hann. (Lausl. pýtt).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.