Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Síða 97
NÝJAR KVÖLDVÖKUR.
175
Ressir •Druids*, segja fornar sagnir, að ver-
ið hafi nokkurskonar goðar, sumir álíta jafnvel,
að þeir hafi gegnt þremur embæltum : Ooðans,
dómarans og læknisins. Reir voru æðstu-
prestar hinna fornu Breta, og er lýst á þann
hátt, að þeir hafi klæðst víðum, hvítum hökl-
um, og krýnt sig eikarlaufa krönsum.
Aðrir hafa eignað Fönikíumönnum hofið,
en sumir Söxum og Dönum, og nokkrir hafa
eignað það Buddha, aðrir Óðni. Ein tilgátan
er, að þar hafi verið allsherjar samkomustaður,
og þar muni þjóðhöfðingjar og herforingjar
hafa verið greftraðir. Og ein ágiskunin er, að
sleinhringarnir hafi verið einskonar »Almanak«,
er fornmenn hafi notað til að miða og mæla
sólar-árið við.
Þó undarlegt megi virðasf, hefir þessi merki-
legi sfaður ekki komist í eigu breska ríkisins
fyr en 1918. Upp lil þess tíma var mannvirki
þetta, og landið sem það stendur á, einstakl-
ings eign. Svo hundruðum ára skifti var það
eign Antorbus ættarinnar, sem býr við Ames-
bury, í • tveggja enskra mílna fjarlægð frá
Stonehenge.
Síðasti eigandinn var Sir Edmund Antorbus,
dáinn 1915. Skömmu fyrir dauða sinn, bauð
hann hín fornu mannvirki, ásamt 20 ekrum
lands, til sölu. Verðið var $ 750,000. Seinna
bauð Sir Edmund eignina á 600,000 dollars,
en breska stjórnin þóttist ekki geta lagt í slík
kaup. Pá var mikið talað um, að Bandaríkja-
menn mundu kaupa, og flytja hina fornhelgu
steina vestur um haf. Af því varð þó ekki.
Þá Ijet Sir Edmund reisa mikla vírgirðingu um
staðinn, því að ferðamannaflokkar þyrptust
þangað og'rgerðu margskonar spjöll á forn-
leifunum. F*á var það, að mótmæli komu frá
allri bresku þjóðinni gegn þessu uppátæki S r
Edmund’s, því að nú seldi hann aðgang að
Stonehenge! Pá var Sir Edmund stefnt fyrir
rjett í London, þar sannaði hann eignarjelt
sinn á landinu og lýsti afstöðu sinni gagnvart
almenningi,4 sem’ þóttist eiga heimting á að
ganga þar um eftir vild. Sagði Sir Edmund,
að áform sitt væri einungis að verja staðinn
ágangi og friða hann. Malinu lauk með full-
um sigri fyrir S r Edmund.
Pegar Sir Edmund dó, 1915, var landeign
hans seld. Pá var Stonehenge selt fyrir
33,000 dollara, ámóta mikið og lítið marg-
býlishús kostar.
Sá sem keypti, átti heima í grend við
Sfonehenge, og kunni að meta staðinn. Hann
gaf svo breska rfkinu e’gnina 1918. Upp til
þess tíma höfðu engar rannsóknir verið gerð-
ar á hinum fornu mannvirkjum, en síðan
Stonehenge komst í eigu breska ríkisins, hafa
vísindalegar fornmenjarannsóknir verið hafnar
þar.
Síðaslliðin níu ár hafa fornfræðingar og
aðrir vís’ndamenn rannsakað rústirnar af óþréyt-
andi elju. Árangurinn af starfsemi þeirra er nú
orðinn sá, að sannað þykir, að aldur Stone-
henge sje langtum meiri en nokkurn hetir áður
dreymt um.
Sjörnufræðingar hafa reiknað út, samkvæmt
breytingum á braut sólarinnar, er þeir álíta að
átt hafi sjer stað á afarlöngu tímabili, að mann-
virki þetta sje reist 700 — 1000 árum áður en
hinir fornu Druids komu til sögunriar. Samkv.
þeim leikningi er Stonehenge bygt 1680 — 1700
árum f. K.
Pess er áður getið, að um sumar sólstöður
rísi sólin beint yfir »Friars HeeU þegar horft
er frá »Altarissteini*. Á þessu atriði bygðu
stjörnufræðingarnir, er þeir ákváðu um aldur
Stonehenge.
Silfurpeningar frá tíð Aðalráðs (Ethelred’s)
konungs hafa fundist í rústum Stonehenge^
sömuleiðis beinagrind af manni, sem talin er
að hafa verið lögð þar áður en Rómverjar
fundu England og lögðu það undir sig.
Á síðustu árum hafa flugmenn virt Stone-
henge fyrir sjer úr hæfilegri hæð; hafa þeir á
þann hátt getað greint fyrirkomulag þessa stór-
felda mannvirkis mikið betur en áður var
hægt á jörðu niðri. Einnig tóku þeir myndir
úr loftinu, og þær hafa leitl í Ijós það, sem
augum manna hafði sjest yfir, en þegar mynd-
irnir voru teknar til nákvæmrar rannsóknar,