Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Side 100

Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Side 100
178 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. pabbi gerir,» sagði Árni litli. sRað var pabbi, sem bjargaði sjer og öðrum, með því að af- höfða aflann, þegar báturinn ætlaði ekki að bera hann. Pabbi finnur æfinlega ráð, og hann hefir líka komist í land í kvöld,* sagði Ámi í alvöruróm. Móðirin var sömu skoðunar. Höskuldur var maður, sem ekki kunni að hræðast. Peir, sem þannig eru gerðir, hafa tíu ráð í hendi sjer, þar sem aðrir hafa eitt eða ekkert. Hann hafði ótal sinnum komist í hann krappan, og ætíð bjargast á sinni eigin karlmensku og ráðsnild; auðvitað gat óhamingjan hitt alla, það vissi Guðný líka, og best var að gera sjer strax Ijóst, að svo kynni að hafa farið, að nú hefði hún orðið Höskuldi yfirsterkari, og hún reyndi að búa sig undir hið versta. Pað, sem gerði Guðnýu órólegri, var, að Höskuldur hafði verið svo áfjáður að fara þessa ferð með öðrum bændum úr firðinum, sem voru að sækja sjer kornmat. »Ef til vill hefir honum dottið í hug, að þetta yrði síðasta ferðin, sem farin yrði til kaupstaðar fyrir jól, og hugsað sjer að nota hana til að ná í ýmislegt smávegis, sem fólk vill ekki vera án á jólunum. En ef svo var, þá hafði hann þó ekki sagt neitt um það.« Pað voru þessar hugsanir, sem ollu Guðnýu áhyggju. Fyr hafði það komið fyrir, að menn höfðu búist skyndilega, óvænt og erindislítið til sinnar síðustu farar. Prátt fyrir þetta var hugsað um jólin í Grundarkoti, því að næsta morgun sagði Guðný litla við móður sína: »í dag eru ekki nema ellefu dagar til jóla.« En hún tjekk ekkert svar. Nú var stormurinn þagnaður. — Pað var orðið eitthvað svo undarlega hljótt úti. Guðný eldri hlustaði, — eiginlega heyrði hún ekki neitt, Helst fanst henni eins og hún heyrði í bylnum og hríðinni einhverstaðar langt í burtu. Hún vissi, að farið var að líða að morgni. En enga skímu gat hún þó greint. Alt í einu drundi kýrin undir pallinum. — Hún var að biðja um^morgungjöfina. — Klukkan hlaut að vera orðin sjö. Guðný smeygði sjer út úr sænginni og fram á gólfið, en sagði um leið við börnin: »Byrgið ykkur nú niður og reynið að sofna. Veðrið er nú orðið svo stilt, að við getum búist við að sjá pabba áður en kvöld er kornið.* Guðný klæddi sig í myrkrinu, hún var því vön, og, hún þekti hverja flík, er hún snerti við henni, og vissi einnig upp á hár, hvar hún hafði lagt hveija þeirra á kvöldin. Með þessu sparaði hún Ijósmatinn. Síðan þreifaði hún s'g áfram, uns hún fanti lýsislampann, tók hann í hægri hendina og fálmaði sig fram eftir gólf- inu, ofan baðstofutröppurnar og fram í eld- húsið, þar sem eldurinn Iá falinn í hlóðunum undir þykku lagi af ösku. Hún skaraði öskuna ofan af og bljes í eldinn, uns hún fjekk hann til að skjóta upp örsmárriV daufri logatungu, þá kveikti hún á lýsislampanum, faldi svo aftur eldinn og fór að sinna skepnunum, — kúnni og kindunum. Fyrir 10 árum höfðu Höskuldur og Guðný byrjað búskap í Grundarkoti, — það var þá í eyði, en þau nýgift og ljetu sjer ekki erfiðleik- ana í augum vaxa. Höskuldur hafði bygt öll bæjarhúsin með eigin höndtim. Veggirnir voru þykkir — tvær til þrjár álnir — hlaðnir úr völdit grjóti, flötu og stæðilegu, nieð vel þurru torfi á milli. Hver einasta spýta í bænum var rekaviður. Allan þann við hafði Höskuldur telgt og sag- að til. Sperrur, b'tar og stoðir var alt úr völdu efni og alt var það Höskuldar verk. Hans hand- bragð var á hverju trje, hverri smáspýtu, att frá kýrbásnum til föstu og fornlegu rúmstoð- anna í baðstofunni. Hornspænina, sem þau hjón- in og börnin notuðu til að matast með, hafði Höskuldur einnig smíðað, sömuleiðis vatns- og mjólkurfötur. Alt vitnaði þetta um iðjusemi hans og atorku, þá manndáð, sem fmnur bjarg- ráð, þar sem aðra þrýlur. Meðsöknuði í hjarta mintist Guðný'þess, hvernig hann morguninn áður hafði horfið henni sjónum í logndrífurini, er hann gekk til sjávar. Hún hafði staðið og
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.