Nýjar kvöldvökur - 01.08.1927, Side 108
NÝJAR KVÖLDVÖKUR
186
það, en tapar því, og lesandinn sjer aðeins
undarlegan leik orða, sem leita að hugsun. —
Máske finnur höf. það, sem hann leltar að, í
framhaldinu, sem hann Iofar, en þá skyldi hann
vera prúðmannlegri í rithætti. — En þrátt fyrir
alt er »Syndir guðanna« athyglisvert rit, því að
það sýnir, hvað býr inni fyrir hjá mörgum
gáfuðum og skapstórum mönnum á þessum
tímum.
Loginn helgi eftir Selmu Lagerlöf. —
Ágæt þýðing. — Heimurinn hefir nú um lang-
an aldur dáð Selmu meir en flestar aðrar kon-
ur. — Hún hefir varpað æfintýraljóma hugsana
sinna, — og óteljandi blæbrygðum lýsingafeg-
urðar inn í hugi miljónanna. — Jeg hefi aldrei
verið Selmu-dýrkandi (hjer er ekki rúm ti! að
skýra hvers vegna), en mjer þykir vænt um
helgisögurnar hennar, — þær gera hugann
bjartari og hlýrri og þá ekki síst »Loginn helgi.«
Steindór Sigurðsson.
S m æ I k i.
Pað tekur hálft ár að súta eina fílshúð.
Héilbrigður maður dregur andann 18 sinn-
um á mínútu.
Austurríki og England voru hin fyrstu lönd
í Evrópu, sem lögðu járnbraut. Frakkland
var næst.
Síðastliðið ár voru 200 björgunarbáíar bygðir
í Englandi handa hinum ýmsu björgunar-
stöðvum þar i landi.
Síðastliðið ár voru gefin út í heiminum
2167 ný frímerki. Tala allra frímeikja í heim-
inum er nú 43,279.
Rað hefir verið stungið upp á því við yfir-
mann flugvarna Englands, að hann gerði flug
að skyldunámsgrein í drengjaskólum þar í landi.
í greifadæminu Devonshire á Englandi hafa
íbúarn r ákveðið að útiýma ótömdum dúfum,
vegna þess að þeir halda því fram, að þær
geri ökrum stórskaða.
Á sýningu einni, sem haldin var í Ameríku
ný'ega, var sýnd þvottavjel, er gekk fyrir raf-
magni, sem gat þvegið 11,000 diska á klst.
Rrátt fyrir það, þótt London hafi vaxið mjög
síðan 1911, hefir þó þessi stóiborg 500 færri
lögregluþjóna nú en þá. Lögreglulið Lond-
onar telur nú 19,356 manns.
Sjérhver Englendingur, sem gerir erfðaskrá
sína, verður að láta lögskrá hana í Sommerset
House. Konungsfólkið eitt er undanskilið.
Á Englandi hefir verið gerð tilraun með að
þurka trje við kulda og hefir gefist vel, þar eð
trjeð rifnar síður en að þurka það við hita,
Aðeins á einum stað í heiminum finnast
svartir demantar, nefnilega Bahia, sem tilheyrir
Brasilíu. Stærsti svartur demantur, sem menn
hafa fundið, var 72,000 kr. virði.
Rað er ekki eingöngu Rýskaland, sem elur
upp og flytur út kanarifugla. Bærinn Narvich
á Englandi ól upp og flutti út síðastliðið ár
yfir 1 miljón af þessum litlu, gulu sör.gvurum.
Við Panamaskurðinn hafa verið settar upp
nýjar 16 þumlunga fallbyssur og er hægt að
skjóta af þeim 15. hverja sekúndu. Kúlan er
yfir 1 tonn (2000 pund) að þyngd og diegur
27 enskar mílur.
Á hóteli einu í London er stærsta gólfá-
breiða, sem til er i heiminum. Pekur hún
yfir gólfflöt, sem er 2000 fermetrar að stærð.
Ábreiðan er 21 tonn (42,000 pd.) að þyngd
og þarf 70 manns til að bera hana og breiða
hana á gólf.