Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1982, Page 19

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1982, Page 19
J ... .. v Ar aldradra > ■ r Á síðasta aðalfundi Sjómanna- dagsráðs sem haldinn var 2. og 9. maí 1981 flutti stjómin tillögusem samþykkt var samhljóða á aðal- fundinum. Tillaga þessi hófst með því að vitnað var til samþykktar þings Sameinuðu þjóðanna um heimsráðstefnu í Vín á árinu 1982. Á það var bent í inngangi tillög- unnar að fjölmargar þjóðir hefðu þegar ákveðið að helga þetta ár skipulagningu, umbótum og framkvæmdum innan þessa víð- tæka málaflokks i heimalöndum sínum. Sú tillaga sem fundurinn sam- þykkti hljóðaði á þessa leið: „Aðalfundur Sjómannadags- ráðs í Reykjavík og Hafnarfirði haldinn dagana 2. og 9. maí 1981 samþykkir að beina þeirri áskorun til allra félaga- og hagsmunasam- taka, sem hafa á stefnuskrá sinni menningar- og mannúðarmál og allra annarra, sem vilja starfa að hagsmunamálum aldraðra, að þeir vinni að því að árið 1982 verði sérstaklega helgað málefnum aldraðra hér á landi“. Síðar var einnig samþykkt ályktun um hvernig ætti að vinna þessum málum lið af hendi stjómar Sjómannadagsráðs og voru nokkrar ábendingar þar um. Einnig fól aðalfundurinn stjóm ráðsins að koma samþykkt þessari til hagsmunasamtaka eins og Al- þýðusambands íslands, BSRB, FFSÍ, Sambands ísl. sveitar- stjóma, þjóðkirkjunnar, Rauða kross íslands, Oddfellowreglunn- ar, Lions- og Kiwanishreyfingar- innar, sérstökum félögum aldr- aðra og þeim mörgu félögum og samtökum kvenna sem vinna að mannúðarmálum. Þótt orsakir væru margar fyrir þeirri atburð- arás sem í hönd fór, sem var m.a. stofnun Öldrunarráðs íslands og fylgni við þessa ályktun aðal- fundar Sjómannadagsráðs á opinberum vettvangi og innan þeirra samtaka sem hér hafa verið nefnd, má örugglega telja að þessi samþykkt Sjómannadagsráðs hafi verið sú kveikja, sem til þurfti til þess að ná þessu markmiði, að helga árið 1982 málefnum aldr- aðra hér á íslandi, gera það að ári aldraðra. Það sem kannski gleður þann er þetta skrifar enn meir er að í ann- arri tillögu, sem þessi sami aðal- fundur samþykkti, virðumst við í Sjómannadagsráði hafa markað rétta stefnu og stigið rétt spor er við tókum okkar þýðingarmiklu ákvarðanir í framhaldi stefnu- mörkunar fyrri ára. Á ég þar að sjálfsögðu við, að áfram skyldi haldið byggingarstarfinu í Hafn- arfirði með þeim krafti sem okkar geta leyfði, um leið og stefnt væri að því að hin nýja hjúkrunardeild í Hafnarfirði yrði íbúðarhæf sem allra fyrst. Við sjáum fram á að það verður í iok þessa árs, — ef guð lofar. Pétur Sigurðsson. Síðari hluti samþykktarinnar sem ég vitnaði til, um að við eflum eigið starf okkar og samvinnu við aðra aðila þ.á m. sveitarfélög og verkalýðssamtök, til leiðbeining- ar, fræðslu, þjónustu og hjálpar við allt sem fellur undir fyrir- byggjandi starf í öldrunarmálum höfum við staðið við og verið þar með mótandi aðgerðir. Við dróg- um réttilega ályktanir af þessari stefnu okkar sem fólust í eftirfar- andi orðum: „Þetta mun stuðla m.a. að því að aldrað fólk geti sem lengst af verið á eigin heimilum í öryggi en með vaxandi aðstoð ef þörf kref- ur, og átt aðgang að heilsufræði- legri, félagslegri og andlegri þjón- ustu í samvistum og nábýli við annað fólk. Samtökin vinni jafnframt að því að valkostir séu á sérhönnuðu vemduðu húsnæði aldraðra, standi sjálf fyrir byggingu slíks húsnæðis, aðstoði aldraða og félög þeirra við slíkar framkvæmdir, og við að koma á fót öryggisþjónustu á heimilum þeirra. Unnið verði að samstöðu aðila um skipulegt heilbrigðiseftirlit og reglulegar heimsóknir til aldraðra. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 17

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.