Sjómannadagsblaðið - 01.06.1982, Blaðsíða 59
Björgunarafrek við
strendur Englands
Frásögn skipstjórans á Tunguíossi
Svo sem alþjóð er kunnugt, þá sökk M/S TUNGUFOSS
suður af Land‘s End í ofveðri og unnu skipverjar á breskum
björgunarbáti og þyrluflugmenn einstætt björgunarafrek, að
því er flestir telja.
Mikið hefur verið ritað og rætt um atburð þennan, og
forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, sæmdi bresku björg-
unarmennina afreksmerki, er hún kom til Bretlands í opinbera
heimsókn.
Sjómannadagsblaðið leitaði til Gunnars Scheving Thor-
steinssonar, skipstjóra á Tungufossi, og bað hann að lýsa
þessum atburði í stuttri frásögn, sem hér fer á eftir.
Frásögn skipstjórans
Það var dimmt að nóttu, þegar
M/S TUNGUFOSS lét úr höfn í
Avonmouth, eftir að hafa farið
um skipalásinn og undir ógnandi
skýjum var haldið sem leið liggur.
í lestum skipsins var laust hveiti
sem fara átti Le Havre í Frakk-
landi, en borgin er við ósa Signu.
Það var 18., september 1981.
Klukkan var orðin tíu að kvöldi, er
lóðsinum var sleppt, og hásetar
voru að ljúka við að ganga frá á
þilfari. Þetta er ekki löng sigling,
frá Bristol til Le Havre, en á hinn
bóginn gat hún verið hættuleg.
Voldugar öldur Atlantshafsins
brotna þar á klettóttri ströndinni.
Umferð skipa er mikil og við
Biskupsstein og Sjösteinarif er oft
draugalegt að vetrarlagi.
Menn unnu skyldustörf sín
þöglir og af hraða og nákvæmni,
og síðan gengu þeir, sem ekki áttu
vakt til náða. Slög vélarinnar
greindust eins og daufur hjart-
sláttur í brúnni.
Þama er nokkuð um skipaferðir
og það grillti í ljósin í Wales og
Bristol, því flóinn er þröngur inn á
milli Somerset og Wales, en þegar
komið er út af strönd Comwall,
þar sem er syðsti og vestasti tangi
Englands, eða Land’s End, eru
skip komin úr öllu vari fyrir haf-
öldunni að heita má.
TUNGUFOSS klauf myrkrið
og ógnandi nóttina. Nokkur vind-
ur var af suðvestri, og gert var ráð
fyrir versnandi veðri.
Leið nú nóttin og án allra tíð-
inda um borð í TUNGUFOSSI,
nema skipið valt nokkuð í þung-
um sjó. Þegar utar dró og leið á
kvöldið var komið hvassviðri og
talsverður sjó. Þama er straumur
mikill og minnir nokkuð á
Reykjanesröstina, svo dæmi séu
tekin hér heima af aðstæðum.
Hafaldan brotnaði á svörtum
flúðum og klettum og skipin fyrir
utan lyftust og hnigu á þykkri
17/4 ’82 fór fram á Reykjavíkurflugvelli æfing og sýnikennsla á björgun slasaðra manna,
sem sóttir eru á haf út af þyrlu. Á myndinni má sjá hvar starfsmaður Landhelgisgæsl-
unnar og nemandi úr Stýrimannaskólanum eru dregnir um borð í Sykorskyþyrluna
TF-Rán.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 57