Sjómannadagsblaðið - 01.06.1982, Blaðsíða 91
sem 1. stýrimaður á b/v Skúla
Magnússyni, með tengdasyni sín-
um, þegar skipið var selt í brota-
jám.
29. janúar 1920 kvæntist Jens
Guðmundínu M. Jónsdóttur frá
Eiðsstöðum við Bræðraborgarstíg
og þar hófu þau búskap sinn hjá
tengdaforeldrum hans, þeim Jóni
Guðmundssyni sjómanni og Þór-
unni Einarsdóttur. Að þeim látn-
um eignuðust þau húsið og bjuggu
þar alla tíð til 14. ágúst 1974, en
þann 19. sama mánaðar lést Guð-
mundína.
Jens var hagleiksmaður til allra
verka og ófá voru handtökin við
viðhald á því gamla húsi sem þau
hjón bjuggu í og ávallt var hann
reiðubúinn til að rétta öðrum
hjálparhönd.
Þeim hjónum varð fimm bama
auðið, en þau eru: Þórir, skrif-
stofustjóri, kvæntur Jenný Ingi-
mundardóttur, Haraldur, skip-
stjóri, kvæntur Huldu Guð-
mundsdóttur, Ásta, gift Erlendi
Jónssyni skipstjóra, Ema, gift
Sigurði Kristjánssyni fv. skip-
stjóra, nú verkstjóra hjá BÚR og
Hólmfríður, gift Jóni Emi Boga-
syni loftskeytamanni.
Jens var fulltrúi Stýrimannafé-
lags íslands í Sjómannadagsráði í
5 ár, 1952—1957.
Það er óhætt að segja það að
maðurinn með ljáinn hafi höggvið
stórt skarð í Eiðsstaðafjölskylduna
við Bræðraborgarstíg.
Blessuð sé minning Jens
Stefánssonar.
Garðar Þorsteinsson.
Á síðasta ári létust nokkrir af
traustum áhugamönnum um fé-
lagsmál sjómanna og meðal þeirra
Elísberg Pétursson, bryti, sem um
skeið var fulltrúi sinnar stéttar í
Sjómannadagsráði, en hann and-
aðist 3. september 1981, og hafði
þá þrjá um áttrætt.
Elísberg Pétursson fæddist á
Kjalamesi, 5. mars árið 1898 og
voru foreldrar hans hjónin Pétur
Hafliðason, beykir og kona hans
Vilborg Sigurðardóttir, en þau
eignuðust átta böm.
Þetta voru erfið ár og þijú börn
höfðu þau hjón misst, þegar tví-
buramir Elísberg og Sigríður
fæddust.
Elísberg ólst upp með foreldr-
um sínum og systkinum til 12 ára
aldurs, en þó hóf hann sjó-
mennsku, sem hjálparkokkur á
togaranum Baldri og síðan ýms-
um öðrum togurum. Þegar gamli
Gullfoss kom til varð Elísberg þar
matsveinn hjá hinum kunna bryta
og síðar kjötkaupmanni J.C.
Klein, en hann var bryti á Gull-
fossi fyrstu árin.
Elísberg staldraði þó ekki lengi
við á Gullfossi, því í árslok árið
1916 h'élt hann utan og sigldi hann
á dönskum skipum í nokkur ár, til
að efla þekkingu sína og skoða
veröldina.
Árið 1919 kom hann síðan al-
kominn til íslands og réðist þá
þegar til Eimskipafélagsins og
varð þar matsveinn og síðar bryti
á skipum félagsins það sem eftir
var starfsævinnar.
Elísberg Sigurðsson kvæntist
13. október árið 1927 Sesselju
Bjömsdóttur, Benediktssonar sjó-
manns, og bjuggu þau í Reykja-
vík.
Sesselja lést árið 1977.
Það er mál manna að Elísberg
Pétursson hafi verið einkar fær í
sínu starfi og hann naut vinsælda
meðal samferðamanna sinna.
Hann sinnti félagsmálum allmik-
ið, enda þótt hann væri ávallt á
sjónum. Notaði frístundir sínar í
landi til að sinna þeim málum. Þó
tranaði hann sér eigi fram. Til
hans var leitað.
Elísberg gerðist meðlimur Mat-
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 89