Sjómannadagsblaðið - 01.06.1982, Blaðsíða 95
JRC
Fjórar gerðir
litamæla
JFV-516 — 10” myndflötur
— 8 eða 16 litir.
JFV-116 —11” myndflötur
— 8 eða 16 litir.
JFV-117 — 11” myndflötur
— Botnstækkun — 8 eða 16 litir.
JFV-316 —13” myndflötur
— 8 eða 16 litir.
13 MÖGULEIKAR Á MYNDASAM-
SETNINGU
SENDIORKA 1,5 — 2,5 — 5 — 10
KW
£ónar hf.
KEFLAVÍK:
Baldursgata 14 Sími 92-1775
Frá Stýrimannaskólanum
í Reykjavík
Umsóknarfrestur um skólavist fyrir næsta skólaár — 1982—
1983 er til l.júlí.
Inntökuskilyrði í 1. bekk eru:
1. Siglingatími: 24 mánaða hásetatími eftir 15 ára aldur á
skipum yfir 12 rúmlestir. Skólastjóra er þó heimilt að meta
annan siglingatíma.
2. Grunnskólapróf (9. bekkur) eða hliðstætt próf. Auk þess
skulu umsækjendur leggja fram vottorð um sjón, heyrn og mál-
færi, sem yfirmannsstaða krefst og skal augnvottorð vera frá
augnlækni, almennt heilbrigðisvottorð, sakavottorð og sund-
vottorð.
Fyrir þá, sem fullnægja ekki skilyrði um grunnskólapróf eða
hliðstætt próf er haldið námskeið og verður sérstakiega tilkynnt
um það.
Inntökupróf fyrir öll stig verða haldin 2. og 3. september.
Skólinn verður settur 1. september nk.
Hann starfar í 2 önnum:
Fyrri önn: Frá 1. september —jóla.
Síðari önn: Janúar— maí.
Nýjum umsækjendum er sérstaklega bent á eftirfarandi:
Treysti hann sér, t.d. af erfiðum fjárhagsástæðum aðeins til að
taka fyrri hluta einhvers stigs — þ.e. sitja í skóla fram að jólum,
getur hann lokið önninni fyrir jól. Efnalitlir sjómenn ættu að
íhuga vel þennan möguleika á námi. Ef margir umsækjenda
hefðu hug á þessu fyrirkomulagi á námi sínu, þá yrði hugsanlega
unnt að mynda sérstakan bekk, sem lyki þá síðari hluta stigsins á
n'æstu haustönn — fyrirjól 1983.
Inntökuskilyrði á 2. stig er skipstjórnarpróf I. stigs og full-
nægjandi framhaldseinkunn í stærðfræði (5), eðlisfr., raf-
magnsfr., ensku og dönsku (4 í hverri grein).
Inntökuskilyrði á 3. stig er skipstjórnarpróf 2. stigs eftir 1967
og fullnægjandi framhaldseinkunn.
Haldið verður4. stig með sama sniði og sl. vetur— þ.e. aukin
kennsla í almennum greinum, mælingar (einkum með tilliti til
sjómælinga), efnafræði, tungumál ,,shipping“ o.fl., ef nægileg
þátttaka fæst.
Inntökuskilyrði á 4. stig er að hafa lokið 3. stigi með 1. eink-
unn og framhaldseinkunn í siglingafræði, ensku og stærðfræði.
Heimavist og mötuneyti er í skólanum.
Skrifið eða hringið.
Sími ritara er: (91) 1 31 94
Sími skólastjóra: (91) 1 30 46
Heimasími: (91) 8 42 58
SKÓLASTJÓRI
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 93