Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1982, Síða 56

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1982, Síða 56
nauðsynlegt til þess að tryggja að hrygn- ingarstofninn sé ekki skertur umfram það mark sem þarf til þess að halda uppi eðlilegri nýliðun. Að því er loðnuna varðar gefur auga leið að til þessa verður ekki beitt ýmsum þeim aðferðum sem gefið hafa hvað besta raun gagnvart langlífari tegundum (t.d. aldurs-afla að- ferðin). Hafa menn því orðið að leita annarra ráða. Fjöldi loðnuseiða og merkingar sem mælikvarði á stærð stofnsins Upplýsingar um hlutfallslegan fjölda loðnuseiða hafa legið fyrirárlega frá 1972 (7. mynd). Verulegar vonir voru bundnar þessari aðferð og víst eru upplýsingar um stærð árganga á seiðastiginu mjög gagn- legar. Hinn takmarkaði fjöldi loðnuseiða seinustu 5 árin bendir t.d. eindregið til þess að stofninn þoli ekki slíkar veiðar sem á honum hafa verið stundaðar þenn- an tíma. Hins vegar er seiðafjöldinn einn sér ekki nærri nógu nákvæmur mæli- kvarði til stjómunar veiða, a.m.k. ekki enn sem komið er. Seinasti bráðabirgða- kvóti var settur á grundvelli slíkra upp- lýsinga og stóðst ekki eins og allir vita. Þá hafa merkingar verið reyndar en á þeim eru ýmis vandkvæði. Vegna smæð- arinnar er erfitt að merkja loðnu fyrr en á seinasta aldursári og niðurstöður koma því of seint. Ótrúlega erfitt er og tímafrekt að finna og fylgjast með skilahlutfalli merkja frá einstökum verksmiðjum og ákvarða þarf dánartölu mérktu loðnunn- ar sem getur verið mjög misjöfn eftir að- stæðum. Merkingar gefa á hinn bóginn óyggjandi upplýsingar um göngur fisks- ins. Má í því sambandi nefna að á þennan hátt sönnuðust göngurnar til og frá Jan Mayen svæðinu á vertíðinni 1978—79 svo ekki varð um villst. Bergmálsmælingar á stærð loðnustofnsins Stærð hrygningarstofns íslensku loðn- unnar hefur verið mæld reglulega með bergmálsaðferðinni frá því haustið 1978, seinustu 3 árin í samvinnu við Norðmenn. Fram til þessa höfðu menn reynt að meta loðnumergðina með samanburði eftir minni eins og lýst hefur verið. Sú aðferð hafði ekki gefið góða raun og var sjáanlega alltof ónákvæm og einstakl- ingsbundin til viðmiðunar við stjórnun veiða. Niðurstöður bergmálsmælinganna eru sýndar á 8. mynd og tákna punktamir á efstu línunni mælingar í október/nóvem- ber og punktamir á miðlinunni mælingar í janúar/febrúar árið eftir. Hafi rétt verið 54 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Hlutfallslegur fjöldi loðnuseiða í ágúst- mánuði 1972—81. mælt og hæfilegur endurvarpsstuðull notaður ætti bilið milli hverrar punkta- samstæðu að svara nokkum veginn til þess afla sem tekinn var milli mælinga auk nokkurra affalla. Neðsta línan fæst þegar reiknuð hafa verið afföll af völdum veiða og ránfisks fram að hrygningu og tákna punktamir á henni hve mikið var skilið eftir til að hrygna árin 1979—82 samkvæmt mælingum frá janúar/febrúar sömu ár. Þetta er ljót mynd sem ásamt lágum seiðafjölda seinustu 5 árin hlýtur að tákna ofveiði ef rétt hefur verið að mælingunum staðið. Og þá er eðlileg spurning hvort hægt sé að sýna fram á að svo hafi verið. Áður var nefnt að fyrir þyrftu að liggja haldgóðar upplýsingar um líffræði og hegðun tegundarinnar. ítarlegar athug- anir sem fram fóru í fjölmörgum svoköll- 1979—82 samkvæmt bergmálsmælingum. Punktamir á efstu línunni tákna mælingar að haustlagi, punktamir á miðlinunni mælingar í janúar—febrúar. Neðst er stofnstærð við hrygningu eftir að frá vetr- armælingunum hefur verið dreginn afli og afföll af völdum ránfisks. uðum leitarleiðöngrum á tímabilinu 1966—78 bentu eindregið til þess að haustið og veturinn væru þeir tímar ársins sem langbest hentuðu til bergmálsmæl- inga á hinum kynþroska hluta stofnsins. Þá væri útbreiðslan minnst og loðnan oftar í heppilegri dreif eða stærri torfum en á öðrum árstímum. lllviðri og rekís myndu að vísu stundum verða til trafala og gætu menn því orðið að bíða færis. í aðalatriðum hafa þessar ályktanir reynst réttar. Tilraunir sem gerðar hafa verið á tímabilinu júlí—september hafa allar mistekist og það verið augljóst strax meðan á þeim stóð. Sama máli gegnir um tilraun sem gerð var í október á seinasta ári. Þá voru aðstæður þess eðlis (mikill rekís og hluti loðnunnar enn í ætisleit í yfirborðslögum sjávar) að líklegt þótti að niðurstöðutölur væru alltof lágar. Hins vegar var mæld stofnstærð svo lág að stjómvöld voru aðvöruð um að sennilega væri ekki allt með felldu og best myndi því að stöðva veiðar í bili jafnframt því sem lagt var til að stærð stofnsins yrði endurmæld. Svipað fyrirbrigði en vægara kom raunar upp haustið 1979, en þá var reynt að mæla óvenju snemma eða um mánaðamótin september/október. Mjög er erfitt og langoftast hefur reynst ófram- kvæmanlegt að mæla á grunnsævinu við S- og SV-land skömmu áður en loðnan hrygnir enda þótt útbreiðslan sé þá hvað minnst. Ef frá eru taldar ofangreindar mæling- ar, sem flestar má raunar flokka undir tilraunastarfsemi, er samræmi milli þeirra mælinga, sem saman eiga, gott. Þetta sést greinilega á 9. mynd þar sem auðu súl- umar tákna mælda stærð hrygningar- stofnsins og þær skástrikuðu aflann sem fékkst milli þeirra. Fyrir utan mælinguna frá sept./okt. 1979 og áður var nefnd er samræmið útrúlega gott og mismunur ekki yfir 5—10% á annan hvom veginn. Þá hefur alloft gefist tækifæri til að endurtaka mælingar 2—3 sinnum á skömmum tíma. Þannig var hrygningar- stofninn t.d. mældur þrívegis haustið 1978. Þrátt fyrir óhagstætt veður við eina mælinguna varð mesta frávik frá meðal- tali ekki nema 18%. 1 febrúar árið eftir var stærð þeirrar hrygningargöngu sem þá var út af Austfjörðum einnig mæld þrisv- ar. Mesta frávik var 6%. Þá var hinn hluti hiygningarstofnsins mældur tvívegis í sama mánuði út af Vestfjörðum. Mis- munur varð ekki teljandi. I janúar 1981 var mælt þrisvar út af NA-landi. Mesta frávik frá meðaltali varð þá 25%. Þetta er óvenjumikið fyrir þennan árstíma og stafaði fyrst og fremst af því að of langt var milli leiðarlína í fyrstu tveim mæling- unum miðað við aðstæður. Síðastliðinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.