Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1982, Side 69

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1982, Side 69
Slokkseyrarbátar í höfn á Sjómannadaginn í fyrra. sýnir aðbúnað sjómanna í landi hjá sjómönnum fyrri alda. Kjör almennings virðast þó hafa verið litlu betri, eftir lýsing- um að dæma, og sjómannsheimili á Stokkseyri á seinustu öld, lýsir Jón Pálsson á þessa leið, og svip- aðar munu aðstæður hafa verið á seinustu öld á Eyrarbakka: Sjómannsheimili á seinustu öld „Nú vil ég reyna að lýsa fáeinum heimiluhi og háttum manna á þeim. Þetta veitir þó ekki, eins og að framan segir, fulla hugmynd um háttu manna og atvinnu þar eystra, en séu tekin þrjú eða fjögur heimili, t.d. efnað, miðlungs- og fátækt heimili, má í stórum drátt- um sjá, hvemig viðhorfið var í þessum efnum. Annað fátækustu heimilanna á Stokkseyri var í miðju þorpinu, en hitt nálægt einni röst þaðan, svo að segja mátti, að það væri „í sveit“. Húsfeðumir voru bræður. Annar þeirra, sá er neðar bjó, átti fjórtán böm, og dóu 8 þeirra á ungbamaaldri. Kona hans var iðjusöm, myndarleg, nýtin og greind vel, og raunar þau hjón bæði, enda urðu böm þau, er upp komust, vel að manni, og þrjú þeirra urðu síðar bamakennarar. Hin þrjú urðu liðtækir verka- menn, og öll eignuðust þau mörg böm. Búslóð þessara hjóna var sem hér segir: 3 hestar, 20—30 kindur og kýr ein eða tvær, enda fram- fleytti „jörðin“ eigi fleiri fénaði. Húsfaðirinn var formaður á skipum fyrir aðra, en fremur linur sjósóknari og aflamaður í minna en meðallagi. Á vorum og haust- um eða milli vertíða var hann há- seti hjá öðrum og oftast hjá góð- um aflamönnum. Lítið var um daglaunavinnu, og var því nytin úr þessari einni kú eða tveim, svo og sjávaraflinn búbjörg fjölskyldu þessarar, auk einhvers lítils sveitarstyrks árlega, þegar verst gegndi og aflinn brást eða fén- aðarhöldin. Híbýlin hef ég engin aumari séð. Baðstofan byggð úr grjóti og torfi, eins og öll önnur „hús“ voru byggð þá. Gluggi var á baðstofu- stafni með fjórum rúðum í og eigi allstórum. Stafgólfin voru 4 alls eða 2 til hvorrar hliðar, bálkar byggðir upp af grjóti með þurru torfi ofan á grjótinu, mýrarhey þar ofan á, engin ábreiða né sæng, og bömin, sem þama „byggðu ból sitt“, lágu og sváfu í þunnum strigapokum, án þess að koddi neinn, svæfill eða sængurfila væri þar undir eða ofan á. Sama máli var að gegna með hjónarúmið að öðru leyti en því, að pokamir, sem þau lágu í, voru hærusekkir allvænir, lagðir ofan á strigaábreiðu, er þakin var yfir mýrarheyið. Moldargólf var í baðstofunni og bænum öllum, ávallt vel hreint, sópað og þurrt. Rúmstokkar eða milligerð milli rúma voru engir, en þunn grjóthella aðskildi þó flest rúmin hvert frá öðru. Kálgarðshola nokkur, er sáð var í gulrófna- og næpnafræi, var fram undan bænum. Kálið og rófurnar entust lengi fram eftir vetrinum og „sættu soðið“ í hrossakjötssúpunni, því oftast var reynt að ná í húðarhest á haustin, einn eða tvo, gegn einni eða tveim vættum sölva, er aflað var að sumrinu til. Allan ársins hring var aðeins brennt mó og þurru þangi, því að kol voru þá hvergi notuð né fáanleg. Húsmóðirin fór á fætur fyrir miðjan morgun, klæddi krakkana og þrifaði þá til, svo og híbýlin öll, en húsfaðirinn fór á kreik ýmist fyrr eða síðar og þá venjulega niður að sjó til þess að snapa sér út bita eða sopa hjá nágrönnunum eða þá til þess að standa í vomum meiri hluta dagsins og róa, ef á sjóinn gaf. Það var meðal annars hlutverk húsmóðurinnar og elztu bamanna að hirða um fénaðinn, hirða þangið, elda matinn, búa um rúmin og sópa gólfið. En ekki þurfti þó mikinn tíma til þess að hrista sængumar eða strjúka af húsmununum, því að þar fyrir- fannst ekkert af því tagi! Hirðingin og snyrtimennskan á öllu úti sem inni var konunni að þakka. Hún var jafnan glöð í anda, ástkær bömum sínum, sem SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 67

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.