Sjómannadagsblaðið - 01.06.1982, Page 73
Hvalshaus vid
Hraínistu
Á norðurlóð Hrafnistu í
Reykjavík, við Laugarásbíó hefur
verið komið fyrir hauskúpu úr
hval.
Hauskúpa þessi er úr langreyði
landaðri við Hvalstöð Hvals h/f í
Hvalfirði árið 1971. Hauskúpan
var send til Nordseemuseum í
Bremerhaven, þar sem gengið var
frá henni til sýningar, hún hreins-
uð og styrkt undir stjóm Gunthers
Behrmann. Síðan var hún falin
Hafrannsóknarstofnun til vörslu
og eignar.
Stofnunin taldi að grip þessum
væri best borgið á lóð Dvalar-
heimilis aldraðra sjómanna og af-
henti Hrafnistu hauskúpuna til
eignar.
Langreyður sú, sem hér um
ræðir veiddist þann 3. ágúst 1971
um 131 sjómílur vestur af Garð-
skaga. Dýrið reyndist vera ung-
tarfur tæpir 16 m á lengd, sem
hefur væntanlega verið hér á
norðurslóðum í ætisleit er það
veiddist á hvalveiðunum.
Langreyður er næststærst skíð-
ishvalanna, hefur veiðst hér allt að
22 m að lengd, en er annars að
finna í öllum heimshöfunum. Á
sumrin leitar hún á áturík kald-
sjávarsvæði norður- og suður-
hvels, þar sem hún gæðir sér
aðallega á krabbaátu, en einnig á
uppsjávarfiski, svo sem eins og
loðnu. Hún hefur nálægt 700 skíði
hangandi niður úr efri skoltinum.
Skíðin notar hún til þess að sía
fæðuna úr sjónum, sem hún tekur
uppí munninn og þrýstir út á milli
skíðanna. Síðla hausts liggur leið-
in til suðlægra slóða hér á
norðurhveli, eða allt suður á 20°
norðlægrar breiddar. Á vetrum
kelfa kýmar og mökun á sér stað,
en langreyðurin er talin eta lítið á
ferðum sínum að vetrarlagi.
Langreyðurin er sundfimt dýr,
sem ferðast yfir árið svo fleiri
þúsundum km skiptir. Til eru
margir stofnar langreyðar í heim-
inum, sem borið hafa uppi nútíma
hvalveiðar og víða hafa verið of-
veiddir. Hér hafa langreyðaveiðar
verið stundaðar með hléum í yfir
100 ár. Norðmenn stunduðu
veiðar hér við land árin
1883—1915 (allt að 562 dýrum á
ári). Árin 1935—1939 voru veidd-
ar langreyðar frá Hvalstöðinni í
Tálknafirði.
Frá Hvalstöðinni í Hvalfirði
hafa verið veiddir árlega að
meðaltali 243 langreyðar á tíma-
bilinu 1948—1980.
Grindin undir Hvalhausinn og
uppsetning hans er gerð hjá
Sindrastáli h/f, undir umsjón
Gests Þorgrímssonar mynd-
höggvara.
Frá vinstri: Guðmundur H. Oddsson, skipstjóri, Már Elísson, fiskimálastjóri, Jón Jóns-
son, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar, Gestur Þorgrímsson, listamaður og Pétur Sig-
urðsson, alþingismaður.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 71