Eimreiðin - 01.04.1930, Side 25
EIMREIÐIN
BOÐDERAR ÓDAUÐL.-KENN.
121
að fengið annan skilning á málinu en að ályktanir hinna
gætnustu spíritista, eins og Sir Oliver Lodge og nans lika,
séu yfirleitt réttar. Mér hafa fundist ályktanir þeirra manna,
sem hafnað hafa allri spíritistiskri skýringu, vera^ ólíklegar
og óvísindalegar, bygðar að mjög miklu leyti á tilgátum, sem
við ekkert hafa að styðjast. En sannarlega er eg fus a aö
hlusta á allar skynsamlegar ástæður með og móti. Og það
finst mér, að hver sannleikselskandi maður ætti að vera.
Ég get ekki með nokkru móti farið nú út í þær stað-
reyndir, sem sannast hafa í þessu máli. Til þess að gera
grein fyrir þeim, þarf miklu meira rúm. Hitt má taka fram,
að þær hafa sannfært miljónir manna um það, að framhalds-
lífið sé sannað — að trúarbrögðin hafi alt af haft rett að
mæla um afarmikilvæg atriði, og að djúphyggjumenn verald- •
arinnar, þeir sem haldið hafa í eilífðarvonirnar, hafi reynst
skarpskygnari, geníalari en hinir, sem móti þeim hafa mælt.
En um það verður auðvitað hver að hafa sína sannfænng. .
Hins virðist ekki ósanngjarnt að ætlast til, að sannfæringin
sé á einhverju reist. í því sambandi dettur mér í hug að
benda yður á ummæli, sem standa í síðustu útgáfunni af hinu
merka ritsafni Breta, »Encyclopaedia Britannica*. Ummælin
eru þeim mun eftirtektarverðari, sem ritgerðirnar í þessu
safni eru samdar af hinni mestu varúð og vísindalegri ná-
kvæmni. Þar er bent á það til viðvörunar, að svo virðist,
eftir opinberum umræðum, sem fram hafa farið á Bretlandi
u*n líkindin fyrir framhaldslífinu, að flestir taki ákveðna af-
stöðu til þess máls, án þess að taka það til greina, sem fram
hefur komið við sálarrannsóknirnar. »Þeir láta sér nægja,
se2ir höf., »að reisa sannfæring sína, með eða móti, annað-
hvort á opinberun trúarbragðanna eða á trúarsetningum líf-
eðlisfræðinnar. En sálarrannsóknamenn verða að halda þyí
fram, kurteislega, en staðfastlega, að allir dómar um málið
séu hvatvíslegir, þeir er virða að vettugi þau kynstur af stað-
reyndum, sem þeir hafa safnað saman, staðreyndum, sem vel
eru sannaðar og koma þessu máli við«. Ég hef oft fundið til
þess sama. Það er svo komið, að í augum sannfróðra manna
er það orðið broslegt og aðfinsluvert að vera að fimbulfamba
um málið út í loftið, þegar fyrir liggja vísindalegar athuganir,
sem óneitanlega skýra fyrir oss málið betur en nokkuð ann-
að, sem fram hefur komið á þessari jörð frá alda öðli, svo
að oss sé kunnugt um.