Eimreiðin - 01.04.1930, Side 48
144
ÞJÓÐSKIPULAG OG ÞINGRÆÐI
EIMREIDIN
stæðari, eftir því sem fylgi þeirra stæði dreifðara, og er á
hvorutveggja full þörf. Því að með þingræðinu er það svo,
að á þingmönnunum stendur alt og þar er »spillingarinnar«
að leita. Það eru þeir, sem bregðast, ef um það er að véla,
en ekki kjósendurnir, sem enginn heilvita maður getur heimt-
að sérlega mikið af, alment. Og stjórnin er ávöxtur þing-
mannanna (meiri hlutans). Sé landsstjórnin vond, þá er það
af því, að þingmennirnir eru ómögulegir, þeir hafa líf hennar
í hendi sér, setja hana á laggirnar og geta steypt henni af
stóli, og fremji þeir ekki það starf sitt eins og góðum og
samvizkusömum mönnum sæmir og skyldan ætti að bjóða
þeim, þá er það ætíð af eiginhagsmuna hvötum eða fyrir lítil-
mensku sakir.
Við samfærslu kjördæmanna má vel leggja til grundvallar
7-kjördæmaskiftingu H. H. og Th. Th. eða aðra svipaða, með
hlutfallskosningum, og ætti þingmannatala þeirra sameinaðra
að vera áþekk og þau hafa nú, jafnvel þótt smátt og smátt
yrði að auka við fulltrúatölu fjölmennustu staðanna, sem alls
ekki er alténd aðkallandi, því að hagsmunir þeirra eru venju-
lega á sömu bók lærðir, en hinna fámennari staða sundur-
leitari og þó eigi síður mikilsverðir. Aðalatriðið er, að sam-
Hggjandi og skyld héruð vinni saman, og ætti ekki að vera
miklum vanda bundið að koma því á, ef áhugann ekki
brestur.
Auk þess ættu kunnáttumenn fyrir sérstakar greinir at-
vinnuveganna að vera lögskipaðir ráðunautar alþingis, og
ætti það að verða fullnægjandi til bóta þeirri hlið löggjafar-
starfsins (sbr. Á. H. Bj.), með því og að einhverir slíkir menn
mundu væntanlega hljóta þingsæti við allar kosningar.
Kjörtímabil er hæfilegt 6 ár. Og deildaskifting þingsins
mætti hverfa, ef nokkrar hömlur yrðu að öðru leyti lagðar
á löggjafarflóðið og afgreiðsluhroðvirknina, sem átt hefur sér
stað að undanförnu.
Hygg ég, að þetta skipulag, er að framan er lýst, yrði
landi og þjóð hollast um hríð.