Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1930, Page 92

Eimreiðin - 01.04.1930, Page 92
188 BAYARD TAYLOR EIMREIÐIN Voru í för með honum fjórir landar hans, einn Englendingur, sonur Gladstones, stjórnmálaskörungsins alkunna, og Eiríkur Magnússon prófessor. Ferðin yfir hafið gekk sæmilega, nema hvað þeir hreptu storm við Islandsstrendur. Til Reykjavíkur komu þeir 29. júlí og dvöldu hér á landi tíu daga, ferðuðust auðvitað til Þingvalla og einnig til Geysis. Var Taylor hrifinn bæði af landi og þjóð og bar hvorumtveggja vel söguna. Sök- um fjarlægðar landsins og sérkennileika þess kvað hann alt, sem fyrir bar, vera merkilegt á einn eða annan hátt. >Stígir þú á blóm, er eins vísf, að það sé jurt óþekt annarsstaðar, fljúgi fugl yfir höfði þér, er rétt líklegt, að það sé æðarkolla, heyrir þú pilt tala á strætum úti, viðhefur hann máske orð, er Sæmundar- og Snorra-Edda hafa virðuleg gert*. Lands- lagið fanst honum hrikalegt, en fagurt. Bregður hann upp glöggum myndum af hinni margbreyttu náttúrufegurð — and- stæðunum, sem hvarvetna blöstu við augum. Hreint sævar- og fjallaloftið minti hann á Miðjarðarhaf og Grikklandseyjar. »Hvað Reykjavík snertirc, segir Taylor, »þá er hún langt frá því að vera eins skuggaleg, óhrein og ill-þefjuð borg og sumir enskir og þýzkir ferðamenn hafa lýst henni. Strætin eru breið og hrein, húsin framúrskarandi notaleg og skemti- leg, jarðvegurinn einkar grænn, fjarða- og fjallahringurinn sannarlega veglegur ásýndum, skorturinn á trjám hið eina, er minnir á, hve norðarlega bærinn er á hnettinum*. Lýsir Taylor nákvæmlega híbýlum þeim, er hann kom í, og að nokkru fólki því, er hann kyntist, en það voru aðallega heldri menn og lærðir. Þá segir hann einnig frá veizlunum og hátíða- höldunum. Andar frásögnin hvarvetna hlýleik höfundar í garð lands og þjóðar. Fær hann vart nógsamlega lofað gestrisnina og góðar viðtökur, er þeir félagar hlutu alstaðar. Hversu Taylor leizt á íslenzku þjóðina, er ljóst af þessum ummælum hans, er hann kvaddi ísland: »Eigi hafa Þingvellir, Hekla eða Geysir, — eigi eyðileg, eld-rokin fjöllin, ömurlegur dökkvi dauðra hraunflákanna, blikandi vötnin og tignríkir firðirnir, — endurgoldið mér ferðina, heldur það að sjá í svip mikla og sann-göfga þjóð, saklaus börn að trausti og ástúð- leik, nærri því meiri en menn að hugrekki og möglunarlausu þolgæði*. Mörgum fögrum orðum fer Taylor einnig um það,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.