Eimreiðin - 01.04.1930, Qupperneq 96
EIMREIÐIN
Kjördæmaskipunin.
[Margt virðist benda til, að gerð verði
einhver breyting á kjördæmaskipuninni,
hvort sem sú breyting fer í þá átt að gera
landið alt að einu kjördæmi eða færa
kjördæmin saman, — fækka þeim. I
eftirfarandi grein eru enn bornar fram
tillögur um kjördæmaskipunina. Þar sem
málið er svo mjög á dagskrá nú, er
gott að það sé rætt sem ítarlegast frá
öllum hliðum, svo að fremur fáist trygg-
ing fyrir því, að breytingin verði til
bóta, þegar hún kemur, hvort sem það
verður fyr eða síðar.]
Eitt þeirra stórmála, sem ekki
þolir mikið Iengri bið en orðin
er, er breyting á núverandi kjör-
dæmaskipun. Háværar raddir hafa
heyrst um, að nauðsyn beri til
breytinga, og ýmsar tillögur hafa
komið rram í þessa átí. Varla
verður þó talið, að nokkur sú til-
laga, sem fram hefur komið, muni hafa náð svo almennri
hylli, að nokkur von sé til að nái fram að ganga. Núverandi
kjördæmaskipun er síðan 1877. Breytingar þær, sem síðan
hafa orðið á henni eru þær, að bætt hefur verið við nokkr-
um kaupstaðakjördæmum, nokkrum tvímenningskjördæmum
skift í einmenningskjördæmi og breytt kosningatilhögun í
Reykjavík, jafnframt því sem þingmönnum hefur verið fjölgað
þar. Það lætur að líkum, að fimmtíu ára gömul kjördæma-
skipun muni vera orðin úrelt nú eftir allar þær miklu breyt-
ingar og byltingar, sem á þessari síðustu hálfu öld hafa orðið
í atvinnuháttum og á hugsunarhætti þjóðarinnar. Að kjördæma-
skipuninni hefur ekki ennþá verið gjörbreytt mun einkum stafa
af því, að til þess þarf breytingu á stjórnaiskránni, en þing-
menn munu yfirleitt ófúsir til mikilla breytinga á þeim lögum-
Hér skal slept að minnast á afstöðu stjórnmálaflokkanna í
landinu til þessa mikilvæga máls, en þó er það bert af blöð-
um þeirra og ummælum ýmsra ráðandi manna innan þeirra,
að þeir munu sjá nauðsyn breytingarinnar, þótt enn hafi ekk'
tekist að verða sammála um neina ákveðna leið. Fljótt á lifið
virðist geta verið um fjórar leiðir að velja, og mundi hver
þeirra, sem farin væri, verða til bóta frá því sem nú er.
Jónas Guðmundsson.