Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1941, Page 60

Eimreiðin - 01.01.1941, Page 60
46 NÝFUNDNALAND OG FJÁRHAGSHRUN ÞESS EIMHEIÐIX fáum og aðeins takmarkaðan tíma árs. En arðurinn af málni- inum lendir mestallur í vasa auðfélaganna, þar til er Nfland sjálft er fært um að taka að sér námurekstur allan. Öðru máli gegnir um atvinnu við skógarhögg og pappírsgerð. Fyrrum var aðeins lítið fellt af skógi og þá mest til eigin afnota til bygginga og til eldsneytis. Sjómönnum var t. d. heimiluð frjáls afnot af skógi á fjögra kilómetra svæði næst sjónum allt i kringum land. En hið innra í landinu var lítið hugsað um skógarhögg, enda örðugt aðgöngu. Þetta breyttist 1905, þegar blaðakóngurinn Nutfield kom til sögunnar og stofnaði pappírsverksmiðju. Upp frá því hefur afar mikið verið fellt af skógi til pappirsgerðar. Fram til 1880, mátti heita, að Nflendingar stunduðu ein- göngu sjóinn, en skeyttu lítt um landið og landsnytjar. Allra hugir beindust út á sjóinn. Allir nærðust af hafsins gæðum, líkt og barnið á móðurbrjósti. Landið var aðeins afdrep með húsaskjóli fyrir illviðrum og hafís. Allt voru sjómenn og sjómannafjölskyldur nema kaupmenn, einn eða fleiri í hverju sjávarþorpi og inargir á St. Johns. Þeir voru flestir útgerðarmenn um leið. Þá voru allir fátækir á Nflandi nema kaupmennirnir, en þeir urðu þó ekki ríkir nema sumir. Peningar þekktust varla. Allir voru i reikningi og tóku út á óveiddan þorsk, þó ekki meira en kaupmanninum fannst áhættulaust fyrir sig og þá. Auður sumra kaupmannanna kom af því, að þeir voru slægir sem höggormar, en sjómenn- irnir einfaldir sem dúfur. Þannig hafði þjóðlífið í landi um langan aldur hagað sér fátæklega og friðsamlega (þó að sultur væri á fiskileysisárum), en á sjónum var alla jafna hörð sókn gegn Ægi og Kára. En um og eftir 1880 hófst ný öld á Nflandi, framfarir, brask og bríarí og — fjárkröggur. Lánsverzlunarfyrirkomulagið gamla hafði sína galla, en hafði gefizt sæmilega fram að byrjun þessarar aldar. Þegar nýi tíminn byrjaði með meira lífi i landi, vildu sjómennirnir fara að ráða sér meira sjálfir, og þá fór að koma illur andi inn í gamla samhandið milli kaupmanna og sjómanna. Bankar fóru að lána, og sjómenn fóru að slá sér saman og spekúlera og stofnuðu jafnvel kaupfélög. Mikið stóð til, því að viljinn var
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.