Eimreiðin - 01.01.1941, Blaðsíða 68
54
NÝFUNDNALAND OG FJÁRHAGSHRUN ÞESS
EIMBEIÐIN
Lítum á. Það er svo að sjá, sem allt sé upp í hendur lagt:
fiskur uppi í landsteinum og um allan sjó, jörð, sem skilar
góðum arði, skógur við höndina til eldiviðar og til að byggja
úr hús, báta og skip, en skepnur geta lengst af gengið sjálf-
ala í skóginum. Það er hróplegt, að í þessu landi skuli nú um
nokkur ár hafa soltið þúsundir manna og orðið að aumingjum.
í söguágripinu hér á undan hefur nokkuð verið skýrt frá
málavöxtum. Við skulum nefna helztu orsakirnar. Þær eru fá-
mennið, strjálbyggðin, menntunarskorturinn, einhæf veiðiat-
vinna, en lítil jarðrækt, nýjar og kostnaðarmeiri lífsvenjur,
fólksflutningur árum saman til Bandaríkja og Kanada og á
seinni árum úr útsveitum til höfuðborgarinnar og nokkurra
kauptúna (þ. e. flótti frá heilbrigðri framtakssemi til atvinnu-
leysis og almenns framfæris þar), en siðast og ekki sizt slæmur
ríkisbúskapur.
Mörgu var um að kenna, og allt var það mannlegt. Hvernig
hefði mátt afstýra vandræðunum og sultinuin? Segi sá, sem veit.
Átti að innleiða rússneskt stjórnarskipulag og hengja alla ríka
Englendinga? Þjóðin hafði fengið það sjálfstæði, sem hún bað
um. Frelsið entist þó ekki langan aldur. Niðurstaðan varð að-
flutningsbann, einokun og drápsklyfjar af sköttum.
Elzta lífveran á jörðu.
Fræðimenn fullyrða, að elzta lifveran, sem enn er til á jörðu hér, sé grát-
viður einn i kirkjugarðinum i Santa Maria del Tule í Mexico. Aldur hans
hefur verið áætlaður með allmikilli nákvæmni a. m. k. 6000 ár. Meginbolur
trésins er 126 fet á hæð, cn efstu greinar þess fyrir löngu fallnar. Ummál
holsins við jörðu cr 125 fet. Tutlugu menn geta með naumindum náð utan
um bolinn, með þvi að slá um liann liring, haldast í liendur og tcygja vel
úr handleggjunum. Það var árið 1805, sem athygh visindamanua var fyrst
vakin á tré þessu. En síðan liafa þeir gert á þvi ítrekaðar mælingar og
útreikninga, bæði um það, er snertir aldur þess og stærð. Ef mælingar
þeirra eru réttar, liefur þessi aldni hlynur fyrst skotið frjóanga úr jörðu
a. m. k. 4000 árum fyrir Krists hurð.