Eimreiðin - 01.01.1941, Qupperneq 118
104
RADDIR
EIMREIÐIN
Ég veit, að það eru til einstöku
veikgeðja raddir, sem lialda, að
það verði metið við oss, ef vér
nú franilengjum sambandið við
Danmörku, sem vér fyrir stríðið
óskuðum að verða lausir við sem
fyrst.
En hver trúir á þetta?
Ég hygg, að meira verði met-
inn eindreginn sjálfstæðisvilji
þjóðarinnar, sem um mörg ár
hefur verið leiðarstjarna vor
að því marki að ráða einir öllum
vorum málum.
Ég veit, að vér erum hertekin
þjóð, en ég trúi yfirlýsingu
brezku stjórnarinnar um, að þeir
dragi herinn í burtu, er striðinu
er lokið.
Ég geri heldur eigi lítið úr vel-
vilja, sem vér liöfum orðið varir
hjá Þjóðverjum.
En eklci geri ég minnst úr þvi,
að vér erum menningarþjóð yzt
norður í liöfum, og þegar jafn-
vægi kemst á í hinni trylltu ver-
öld, þá lilýtur það að vera áhuga-
mál liins menntaða heims að lofa
oss i friði að auka þá menningu,
sem fortíðin fékk oss til varð-
veizlu.
Með þessu finnst mér ég hafi
svarað fyrstu og annarri spurn-
ingunni, og með þvi svari er
þriðja spurningin fallin burt.
Sig. Eggerz.
ísland erlendis.
Mikið er nú ritað um ísland
og islenzku þjóðina í ensk og
amerísk blöð og tímarit, meira
en nokkru sinni áður. Mikið af
þessu efni eru bréf frá brezkum
og kanadiskum liermönnum, en
auk þess liafa verið hér og eru
fréttaritarar erlendra blaða, sem
margt liafa að segja af högum
lands og háttum. Eins og geng-
ur, er talsvert af rangfærslum og
misskilningi innan um i sumum
þessara skrifa, og þýðir ekki að
kippa sér upp við slíkt. Þannig
var fyrir skönnnu kyndugt
fréttabréf béðan i „Tlie News of
the World“, og var þar meðal
annars skýrt frá þvi til dæinis um
frosthörkurnar á íslandi, að is-
inn á Reykjavíkurtjörn væri 15
ensk fet á þyklct. í blaði enska
hersins hér, „The Midnight Sun“,
sem út kemur vikulega, var gert
mikið skop að þessuin fréttum og
bent á, að dýpt Reykjavíkurtjarn-
ar væri yfirleitt ekki nema 2—3
fet, svo að 15 feta þykkur is á
lienni væri algerlega óskiljanlegt
fyrirbrigði. Ýmislegt annað í
fréttabréfinu var álika nákvæmt
og ísmæling þessi.
Bréf kanadisku hermannanna
sextán, sem birtist í Bandaríkja-
vikuritinu „Time“ 13. janúar
1941, virðist helzt liafa lent í
röngum bálki blaðsins, fréttabálki
í stað skopbálks, og hafa verið
skrifað til að skopast að kana-
diskum hermönnum, þótt ótrúlegt
sé. Þcssir sextán magaveiku kan-
adaliermenn kvarta sáran undan
vistinni hér. Launsátur, byssu-
skot og hnífsstungur frá íslend-