Eimreiðin - 01.10.1946, Side 26
250
REGNBOGINN
eimre.ðin
— Heldurðu að við tökum nokkuð marlc á svoleiðis kerlinga-
bókum? Þú ert þó víst ekki á leið undir regnbogann, allan
þennan veg innan frá Felli?
Nú rétti telpan úr sér og logaði af ákefð og brifningu. Það
var eins og liún skynjaði, að veruleikinn væri þarna ekki eins
grár fyrir járnum, eins og liefði mátt virðast af orðum Þorgils-
— Ju-bú, það er ég einmitt! Hugsið ykkur, komast undir
regnbogann og geta óskað sér livers sem er. Ó, þið eigið svo gott
að eiga liérna lieima, þar sem regnboginn er svo oft, stundum
oft, oft á dag!
Víst er um það: Bræðurnir þutu ekki til fagnandi og hrópuðu
hósíanna, en það var síður en svo, að það væru samt nokkrir
kaldir efagikkir, sem telpan átti tal við. Það var Þorgils, sem
svaraði, svaraði í svipuðum tón og bóndi, sem hefur þótzt fá þá
reynslu af sinni ábúðarjörð, og þau lilunnindi, sem talin eru
benni fylgjandi, séu ekki eins mikils virði og af hefur verið látið.
— Það er nú víst ekki eins auðgert, eins og þú lieldur, að
komast undir regnbogann. Það ættum við að þekkja. Þorgils
beit á vörina og skotraði augunum til Egils. En Egill stóð og
glápti á telpuna eins og liún væri eittlivert viðundur veraldar.
Hann bafði sjálfsagt ekki mikið við þetta að atliuga, sem skroppið
bafði fram úr eldri bróðurnum.
Það var djúp eftirvænting og alvara í augum og málrómi
Gunnu litlu, þegar liún spurði:
—- Hafið þið þá kannske reynt það?
Egill leit á bróður sinn, og Þorgils varð undirleitur og sparkaði
í lirossataðsköggul. En hér varð eitthvað að segjast, úr því að
maður var kominn xit á þessa braut.
— Reynt það, — já, hvað gerir maður ekki, svona í gamni-
Þögn. Afar alvarlegt fólk. Telpan spennt og íhugandi, Þorgd8
skimeygur og sýnilega í nokkrum vandræðum, Egill á verði,
atbugandi, bvemig eldri bróðirinn sneri sér í þessu, en annars . • •
annars fús til að segja frómt frá — og jafnvel taka þátt í að
freista gæfunnar, aðeins ef það teldist karlmanni samboðið að
mati þess, sem bafði ávallt haft forystuna í krafti aldurs og
reynslu.
Loks sagði telpan: