Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1946, Page 26

Eimreiðin - 01.10.1946, Page 26
250 REGNBOGINN eimre.ðin — Heldurðu að við tökum nokkuð marlc á svoleiðis kerlinga- bókum? Þú ert þó víst ekki á leið undir regnbogann, allan þennan veg innan frá Felli? Nú rétti telpan úr sér og logaði af ákefð og brifningu. Það var eins og liún skynjaði, að veruleikinn væri þarna ekki eins grár fyrir járnum, eins og liefði mátt virðast af orðum Þorgils- — Ju-bú, það er ég einmitt! Hugsið ykkur, komast undir regnbogann og geta óskað sér livers sem er. Ó, þið eigið svo gott að eiga liérna lieima, þar sem regnboginn er svo oft, stundum oft, oft á dag! Víst er um það: Bræðurnir þutu ekki til fagnandi og hrópuðu hósíanna, en það var síður en svo, að það væru samt nokkrir kaldir efagikkir, sem telpan átti tal við. Það var Þorgils, sem svaraði, svaraði í svipuðum tón og bóndi, sem hefur þótzt fá þá reynslu af sinni ábúðarjörð, og þau lilunnindi, sem talin eru benni fylgjandi, séu ekki eins mikils virði og af hefur verið látið. — Það er nú víst ekki eins auðgert, eins og þú lieldur, að komast undir regnbogann. Það ættum við að þekkja. Þorgils beit á vörina og skotraði augunum til Egils. En Egill stóð og glápti á telpuna eins og liún væri eittlivert viðundur veraldar. Hann bafði sjálfsagt ekki mikið við þetta að atliuga, sem skroppið bafði fram úr eldri bróðurnum. Það var djúp eftirvænting og alvara í augum og málrómi Gunnu litlu, þegar liún spurði: —- Hafið þið þá kannske reynt það? Egill leit á bróður sinn, og Þorgils varð undirleitur og sparkaði í lirossataðsköggul. En hér varð eitthvað að segjast, úr því að maður var kominn xit á þessa braut. — Reynt það, — já, hvað gerir maður ekki, svona í gamni- Þögn. Afar alvarlegt fólk. Telpan spennt og íhugandi, Þorgd8 skimeygur og sýnilega í nokkrum vandræðum, Egill á verði, atbugandi, bvemig eldri bróðirinn sneri sér í þessu, en annars . • • annars fús til að segja frómt frá — og jafnvel taka þátt í að freista gæfunnar, aðeins ef það teldist karlmanni samboðið að mati þess, sem bafði ávallt haft forystuna í krafti aldurs og reynslu. Loks sagði telpan:

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.