Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1946, Side 30

Eimreiðin - 01.10.1946, Side 30
254 REGNBOGINN EIMREIÐIN liúfunni sinni, sem dottið liafði af honum, um leið og liann féll. Telpan tók fastar utan um liönd Egils, og þau liéldu áfram að lilaupa við fót. Svo námu þau bæði staðar og litu um öxl. Þarna stóð Þorgils, kreppti hnefana yfir höfði sér og öskraði: — Bíddu bara við, ófétis limurinn! Gunna litla þaut á sprettinn, og Egill fylgdi henni eftir. Það var eins og hennar vilji væri beggja lögmál. Eins og hind og hjörtur þjóta inn í skóginn, finnandi hlýja og kvikandi hlið við hlið, eins lientust þau áfram, hönd við liönd. Loks námu þau staðar í hvamminum utan og ofan við Brekku- bæinn. Þau slepptu hendi hvort annars og horfðust í augu. Svo sagði Gunna litla: — Held-lieldurðu, að hann geri þér nokkuð? Egill leit upp í loftið, stórevgur og svipþungur. Svo sagði liann, og það var djúp af fyrirlitningu í röddinni: — Geri mér nokkuð! Spurðu lieldur, hvort ég muni gera lion- um nokkuð! Hxin rétti skyndilega fram hendurnar og studdi þeim á axlirnar á lionum. Hún liorfði í augu hans, og hann skalf við. — Þú mátt það ekki, Egill. Þú verður að lofa mér því að gera það ekki! Hann hvarflaði augunum, og það brá fyrir hiki í augnaráðinu og svipnum. Svo hleypti liann brúnum og varð liarður og ákveð- inn á svip. — En liann ræðst á mig, — það geturðu reilt þig á, og ég . • - nú gef ég honum ekki eftir. Augnabliks þögn. Svo bætti hann við: — Hann hefur alltaf kúgað mig og ráðið öllu, en nú nú verður það öðruvísi. Gunna litla á Felli starði þögul á Egil, og eins og ósjálfrátt dró liún að sér hendurnar, sem hún liafði stutt á axlirnar á honum. Hún fann það allt í einu, að hún gat ekki lagt hand- leggina um hálsinn á lionuin og sagt: — Elsku góði EgiII minn, þú mátt ekki fara að eigg í illu við liann Þorgils! Nei, hún gat það ekki. Það var eins og Egill stæði í þeim rétti, sem ekki einu sinni barnsleg mildi og gæzka mættu hafa nein áhrif á, — og hún hafði það á tilfinningunni, að liún hefði átt einhvem þátt í því, að liann hafði öðlazt þennan rétt . .. Hvað

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.