Eimreiðin - 01.04.1948, Qupperneq 15
eimreiðin
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
95
sama þó aö engin þjóð óski styrjaldar, heldur óttist hana
allar. Afleiðingin af ótakmarkaðri stjórnmalalegri styrjöld
milli stórveldanna er vopnaviðskipti. Þessi stjórnmálalega
styrjöld geisar hvarvetna, á þingi Sameinuðu þjóðanna og
i ráðum og nefndum þeirrar stofnunar, milli hernámsveld-
anna í Berlín, í Asíu og víðar. I höfuðborg Þýzkalands er
háð hörð barátta um það, hvort einu stórveldi á að takast að
ná þar yfirhöndinni. Ef það tekst, hefur sama stórveldi í
hendi sér allar meginsamgönguæðar Vestur-Evrópu. I
Palestínu logar sd eldur, sem í einu vetfangi getur orðið að
báli. Gyðingar og Arabar deila þar um völdin í landinu, og
eru báðir aðilar voldugir og eiga volduga stuðningsmenn að.
Arabaríkin í Asíu og Afriku styðja arabana í Palestínu með
ráðum og dáð, og hafa sum þegar veitt þeim hernaðarlega
aðstoð. Gyðingar í Palestínu njóta hinsvegar styrlcs trú-
bræðra sinna, sem dreifðir eru um flest lónd. Meðal þeirra
eru margir áhrifamenn, — og margar sögur fara af hinu
alþjóðlega gyðingaauðvaldi, sem ráði miklu um rás heivis-
atburðanna. Eftir að Bretar hafa látið af stjóm Palestinu
eru litlar líkur til, að þar verði komið á friði, nema með rót-
tækum aðgerðum Sameinuðu þjóðanna. En samkomulagið
innan þeirrar stofnunar bendir ekki til þess, að þaðan^ sé
björgunar að vænta í þessu vandamáli. í Grikklandi geisar
enn borgarastyrjöld, sem ekki er enn séð fyrir um hvemig
tykta muni. í Kína hefur borgarastyrjöld staðið í mörg ár
°g stendur enn. Þannig má halda áfram að telja upp alvar-
leg deiluefni og jafnvel vopnaviðslcipti víðsvegar um heim.
Meðan svo er, reyna allar þjóðir að vera viðbúnar því versta,
bó að sjálfsagt sé að vona, að úr rætist. Sem stendur bendh
ekkert til að átökunum linni. En á meðan svo er, hvílir óttinn
við nýja heimsstyrjöld eins og mara á öllum þjóðum heims.