Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1948, Page 25

Eimreiðin - 01.04.1948, Page 25
eimreiðin Hvað líður þjóðræðinu? Eftir Halldór Jónasson. Feiknin öll hafa verið rituð um liugtakið demókratí síðustu árin vegna þess, að þar liafa komið upp liin ólíkustu sjónarmið, sem áður hafði ekki orðið vart við. Eiginlega merkir orðið demókratí nú almennt ekki annað en það stjórnarfarsástand, 6em menn óska sér, og er þá sýnilegt, að óskirnar hljóta að fara niest eftir eðli og afstöðu óskendanna og þar af leiðandi verða ærið ólíkar. Aðalkjörorð demókratanna hefur liingað til verið frelsið: — frelsi frá undirokun og athafnafrelsi til orða og verka. Er þar einkum tekið sjónarmið einingjans,1) og nefnt hið vest- ræna demókratí Austræna sjónarmiðið svonefnda er aftur aðallega bundið við óskina um öryggi. Og eftir kenningunni er það örvggi þjóðar- heildarinnar, vegna þess að þar með tryggist bæði réttaröryggi °g hagsmunaöryggi einingjanna. Vestræna stefnan bendir á, að það öryggi, sem er kevpt með fndirokun undir vélrænt skipulag, sé falskt og fái ekki staðist lengi. Austræna stefnan bendir liin6vegar á, að vestræna frelsið ®é engu síður falskt, því að það sé raunverulega ekki annað en frelsi til að spila og braska með kjósendafylgi eða færi til að ná PólitÍ6kri valdaafstöðu. — Þetta er alveg rétt, að því er snertir «franska demókratíiðu, sem hér á landi er framkvæmt undir nafninu lýSrœSi. Lýðræðið er bæði samkvæmt eðli sínu og reynslunni ekkert annað en tafl um völd og yfirráð og þar af leiðandi svo ódemó- Lratísk stefna, sem orðið getur. Brezka demókratíið eða þjóð- fæðið er aftur annars og betra eðlis, enda þótt blandað sé um of frönsku lýðræði. Aðfinnsla vestrænu stefnunnar á hinni austrSenu er og engu síður réttmæt. Svo að enda þótt það sé rétt, að vestræna demó- Orðið einingi er notað i stað orðsins einstaklingur, sem er stirðara í **hum 6amsetningum og samböndum.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.