Eimreiðin - 01.04.1948, Side 58
EIMREIÐIN
Nokkrar minnisgreinir
úr utanför 1948.
Auk þeirra meginerinda, sem ég liafði með liöndum fyrir
Ríkisútvarpið í utanför miimi í marz og aprílmánuði síðastliðn-
um, gerði ég mér far um, eins og ég ávallt geri í slíkum ferðum,
að komast í snertingu við spíritisk efni. Það vildi svo til, að ég
var staddur í London uin þær mundir, sem spíritistar þar minnt-
ust 100 ára afmælis hreyfingarinnar. Ég liafði með bréfi til Mr.
Rossiter, aðalritara Marylebone Spiritualist Association, tryggt
mér þátttöku í þessum fagnaði samherjanna í mesta spíritista-
landi jarðarinnar, og ég vænti mér mikils. Rossiter tók mér alúð-
lega og liafði tryggt mér gott sæti á höfuðsamkomunni í Royal
Albert Hall 31. marz. Enn fremur gafst mér kostur á að sitja
afmælishóf lielztu leiðtoganna 2. apríl í Holborn Restaurant við
Kingsway.
1 öðru lagi gafst mér kostur á að heimsækja Mrs. Parish, meðan
ég dvaldist í London.
í þriðja lagi var ég gestur Einers Nielsen í Kaupmannahöfn á
tveimur líkamningafundum, 8. og 11. apríl, og á fundi fyrir beinar
raddir 14. apríl.
Ég ætla að byrja á því að rekja það lielzta, sem ég man glögg'
lega frá fundum Nielsens. Allmargir Islendingar liafa átt kost
á því að vera á fundi hjá honum og vita helztu atriði um það,
livernig líkamningafundunum er hagað. Fundirnir eru lialdiur
við daufa, rauða birtu og hefjast með bæn og sálmasöng. Miðill'
inn situr í stól, inni í byrgi, á bak við létt tjöld úr svörtu efm-
Miðillinn fellur í trans, meðan á sálmasöngnum stendur, síðan
stendur hann upp, og stjórnandinn Mica talar af vörum hans
til fundargesta. Ræður stjórnandans eru ávallt spaklegar og hjart-
næmar og verða hverjum manni minnisstæðar. Mjög oft koma og
aðrar verur, sem tala af vörum miðilsins til fuudargesta. Áður