Eimreiðin - 01.04.1948, Side 63
eimreiðin
NOKKRAR MINNISGREINIR
143
á æðri liandleiðslu. Ég blaðaði alllengi í tveggja mánaða safni
af bréfum, sem henni höfðu borizt frá Afríku, frá íslandi og frá
öllum löndum þar á milli, og komu þar fram undursainlegir
vitnisburðir um lækningar í fjarlægð fyrir mátt bænarinnar einnar _
saman. Mrs. Parish veitti mér þá virkt að leyfa mér að dvelja
tneð sér stundarkorn í einkakapellu sinni. Ég dró skó af fótum
mér, því kapellan, ásamt öllu húsinu, er lieilagur staður, og ef
unnt væri að hugsa sér, að sjálfur liinn æðsti kærleikur væri
íklæddur lioldi og blóði á þessari hrjáðu jörð, þá er liann það
í persónu Mrs. Parish. Heimsókninni til hennar mun ég aldrei
gleyma.
Eins og ég gat um í upphafi máls míns, vænti ég mér mikils
af því að mega vera viðstaddur aðalhátíðahöld brezkra spíritista
a 100 ára afmæli hreyfingarinnar. Félög spíritista í Bretlandi eru
wtörg og starfa í ýmsum deildum, cn meginsamböndin munu
vera þessi þrjú: The Spiritualist National Union, The Greater
^ orld Christian Spiritualist League og The Marylebone Spiritua-
list Association. Hátíðahöldin í Bretlandi munu hafa verið marg-
Eáttuð og farið víða fram í hinum einstöku félögum og félaga-
samböndum, og ég get ekki skýrt frá þeim hátíðaliöldum né lagt
dóm á þau. En þessi áðurnefndu sambönd stofnuðu til saineigin-
legrar afmælishátíðar í Royal Albert Hall 31. marz, og var ég
Þar viðstaddur, eins og áður segir. Forseti samkomunnar var
Ernest Oaten. Ræður fluttu formenn áðurnefndra sambanda: H.
L. Vigurs, H. F. Bendall og P. Hitchcock og enn fremur Hannen
Stvaffer, en tveir af fremstu skyggnimiðlum Breta, Helen Hiiíihes
°g Estelle Roberts, höfðu skyggnilýsingar. Royal Albert HaR er
geysistórt, hringmyndað samkomuhús, eins konar „amfitheater“,
°g mjög illa til þ ess fallið að halda þar samkomur sem þessa,
enda var bergmálið svo mikið, að því líkast var sem þrír eða
fjórir töluðu samtímis. Ég verð því að játa, að ég naut ekki til
fulls þess, sem fram fór. Að vísu heyrði ég allvel til miðlanna,
en heyrði aftur á móti illa svör þeirra samkomugesta, sem þeir
attu orðastað við, og get því ekki heldur að fullu myndað mér
skoðun um árangurinn. Sálmar voru sungnir milli þess sem
mAur voru fluttar og leikið á hið mikla orgel hússins. Hins