Eimreiðin - 01.04.1948, Síða 73
eimreiðin
ÍSLAND
153
*
Blómin flétta, björt og nett,
blæjur, þéttar geirum.
Fákar léttir fara sprett
fram á sléttum eyrum.
Heyra í blænum hörpur má
himinrænar gjalla.
Hjarðir vænar fæðu fá
fram um græna hjalla.
Lindin prúða leikur teit
ljóð um skrúðið grundar,
ofan flúðir, út um sveit,
áin snúðugt skundar.
í straumi þreyta laxar leik,
lægis neita í kerum.
Út við Ieiti eimir reyk
upp af heitum hverum.
Frjálsra lýða fara í hönd
fegri tíða sögur.
Brosir þýð á bæði lönd
byggðin við og fögur.
Gyllir sólin bjarkablöð,
brum og fjóluhnappa.
Á bæjarhólum börnin glöð
í bláum kjólum vappa.
Hljóðnar áin, lárétt land
lækkar ávallt hljóðin,
unz við gráan ægisand
enda náir ljóðin.
Engan svíkur yzta byggð.
Allir líka sanna,
eru ríkri auðnu tryggð
óðöl víkinganna.
Kappar frægir knýja gnoð,
kveðja bæ og strendur,
herði blæinn, hækka voð,
herja á Ægis lendur.
Yddir falda um úthöf breið,
unni kaldinn skautar.
Aðrir halda heim á leið,
hvað sem aldan tautar.
Áin þýtur, ólgar hver
— afl, sem þrýtur varla.
Framtíð lýtur fögur þér,
foldin hvítra mjalla.
Jón Jónsson, Skagfirðingur.
Til lesendanna.
Vegna þeirra mörgu lesenda, sem hafa látið í ljós ósk um að fá í þýð-
**>gu framhald á bókum dr. Alexanders Cannons, en tvær bóka hans
hafa áður birzt hér í Eimr., skal þess getið, að í næsta hefti mun að
°llu forfallalausu verða hægt að hefja birtingu á nýjustu bók hans, sem
nú er verið að gefa út í Englandi. Eimr. hefur tryggt sér þýðingarrétt-
mn — 0g mun framhald bókarinnar koma í næstu heftum, unz henni er
•okið. Myndir þær, sem fylgja texta frumútgáfunnar, munu einnig fylgja
býðingunni.