Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1948, Síða 75

Eimreiðin - 01.04.1948, Síða 75
eimkeiðin 155 SÝN titraði og að hann tárfelldi um leið og hann gaf mér blessun eína að skilnaði. Ég man svo vel eftir þessu aprílkvöldi. Það liafði staðið yf- ir markaður í þorpinu um dag- inn, og fólkið, sem liafði komið utan úr sveitunum til þess að verzla, var að leggja af stað aftur heim á leið. Þrumuveður lá í loftinu, aðdynjandi storms, ilmurinn frá votri jörðinni barst inn til mín, og rakur vind- urinn fyllti andrúmsloftið ann- arlegum höfga. Ég lief aldrei logandi ljós hjá mér í herberg- inu, þegar ég er einsömul, svo að ekki sé nein liætta á slvsum, svo sem að kviknað geti í fötum niínum. Ég sat flötum beinum ú gólfinu í myrku lierberginu °g ákallaði guð minnar hlindu tilveru. «Ó, Drottinn minn“, hrópaði cg; þú liylur ásjónu þína fvrir niér, svo ég fæ ekki séð þig, því ég er blind. En ég held dauðahaldi um stýrisvöl míns helsærða hjarta, unz blóðið drýpur úr sárunum á höndum núnum. Holskeflurnar liafa orð- ið mér ofviða. Hversu lengi ætl- ar þú, Drottinn, að láta mig Þjást, hversu lengi?“ Ég livíldi höfuð jnitt á rúm- kríkiuni og grét beizklega. Allt 1 einu fann ég einhverja lireyf- ingu við rúmið. Og áður en varði var Hemangini kropin við hlið mér. Hún vafði handleggj- unum um háls mér, og þögul þurrkaði liún af mér tárin. Ég veit ekki af hverju liún hafði tafið svona lengi í innra her- berginu þetta kvöld, legið þar alein í rökkrinu. Hún spurði mig einskis, mælti ekki orð frá vörum, hélt aðeins svalri liönd sinui um enni mér stundarkom, kyssti mig og læddist svo hljóð- lega á braut. Morgunimi eftir sagði Hem- angini við frænkuna, í viður- vist minni: „Ef þú ætlar að dvelja hér áfram, þá geturðu gert það. En ég verð hér ekki lengur. Ég er að leggja á stað lieim og læt þjóninn okkar fylgja mér“. Frænkan bað hana vera ró- lega og kvaðst ætla að verða henni samferða. Svo gekk hún til liennar, brosandi út undir eyru og fleðuleg í bragði, dró perluskreyttan liring upp úr flauelsfóðruðu skríni, sem hún liélt á, og sagði: „Sjáðu, Hemó, þenna fallega hring, sem Abinash hefur kom- ið með lianda þér“. Hemangini hrifsaði hringinn úr liendi hennar. „Sjáðu, frænka, hvað ég er góð að skjóta í mark“, sagði Hemangini og bar ört á. Og um leið þeytti hún hringnum út um
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.